Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, skrifar um veggjöld í Morgunblaðið í dag. Líkt og fréttir herma stendur til að setja veggjöld á stofnleiðirnar þrjár úr Reykjavík, öll jarðgöng og ýmsar framkvæmdir um land allt. Björn Leví vill kalla gjöldin réttum nöfnum:
„Gróflega má reikna má að kostnaðurinn sem veggjöldin eiga að standa undir sé um 2,5-5 mia.kr. á ári eftir því hversu miklum nýjum framkvæmdum er bætt við. Fyrir ári sagði samgönguráðherra að engin áform væru um veggjöld á helstu leiðum frá Reykjavík. Ráðherra hefur skipt um skoðun.
Veggjöld hafa oft verið rædd á undanförnum áratugum en nú er uppstillingin sú að það á að afgreiða þingsályktun um veggjöld í síðustu vikunni áður en haustþing klárast. Ekkert svigrúm til umsagna. Ekkert svigrúm til samráðs. Flýtimeðferð og geðþóttaákvarðanir út í gegn.Við skulum hafa eitt á hreinu, veggjöld eru skattur. Skattur sem notendur veganna greiða. Á þann hátt getur veggjald svo sem verið sanngjarn skattur, þeir borga sem nota. Á hinn bóginn leggst sá skattur mun þyngra á lágtekjufólk af því að gjöldin eru óháð tekjum,“
segir Björn Leví.
Hann nefnir að nú þegar séu samgöngur fjármagnaðar með bensíngjaldinu, sem sé svipað fyrirkomulag og veggjöld. Sá fjármögnunarliður er hinsvegar fallandi, þar sem bílar verða sífellt sparneytnari og rafmagnsbílum fjölgar. Því mun sá tekjustofn fara minnkandi í framtíðinni:
„Hér er þó mikilvægt að gera greinarmun á almennu veggjaldi sem kæmi í staðinn fyrir bensíngjöld og sérstöku veggjaldi vegna einstakra framkvæmda. Ef það yrði sett á almennt veggjald í staðinn fyrir bensíngjald en ýmsar framkvæmdir eins og Sundabraut yrðu fjármagnaðar með sérstöku veggjaldi, þá yrði augljóslega tvöfalt veggjald á Sundabraut þangað til sérstaka veggjaldið myndi greiða niður framkvæmdakostnaðinn við Sundabraut. Tillögurnar sem liggja fyrir samgöngunefnd snúa hins vegar ekki að almenna veggjaldinu heldur bara að sérstaka veggjaldinu, að fjármagna einstaka framkvæmdir og endurgreiða lán vegna þeirra með gjaldtöku.“
Björn Leví segir einnig að ekki sé um að ræða þá stórsókn í vegaframkvæmdum sem samgönguráðherra hefur boðað:
„Eins og áður sagði þá má gera ráð fyrir því að til þess að ná upp þeirri skuld sem við erum í vegna hrunáranna þurfi allt að 5 milljörðum meira framkvæmdafé til samgangna á ári en nú er gert ráð fyrir, þá ofan á „stórsókn“ ríkisstjórnarinnar í samgöngumálum sem er auðvitað engin stórsókn ef meðaltal framlags til samgöngumála m.t.t. landsframleiðslu er skoðað. Sóknin nær ekki meðaltali þessarar aldar í fjármögnun.
Samgönguráðherra segir svo að það þurfi að gera nýja samgönguáætlun næsta vetur. Áætlun sem tæki þá tillit til aukins framkvæmdafjár vegna sérstakra veggjalda. Samt liggur lífið á að troða inn breytingatillögum um veggjöld í núverandi tillögu að samgönguáætlun. Án umsagna. Án samráðs.“