fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
Fréttir

Íslenskur leikstjóri kom sá og sigraði á dönsku kvikmyndaverðlaununum – Besta myndin – Besti leikstjórinn – Sjö verðlaun til viðbótar

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 5. febrúar 2018 06:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenski leikstjórinn Hlynur Pálmason kom sá og sigraði í gærkvöldi þegar dönsku kvikmyndaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn. Hlynur leikstýrði myndinni Vinterbrødre (Vetrarbræður) en kvikmyndin var sigurvegari kvöldsins að öðrum ólöstuðum.

Myndin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda en hefur á móti átt erfitt uppdráttar við að ná til kvikmyndahúsagesta. Myndin fékk níu verðlaun í gærkvöldi, þar á meðal sem besta mynd ársins og Hlynur var valinn besti leikstjórinn.

„Þetta er klikkað, alveg frábært. Þetta er mikill heiður og viðurkenning til allra sem komu að gerð myndarinnar.“

Sagði Hlynur þegar niðurstaðan lá fyrir í gærkvöldi. Danska ríkisútvarpið skýrir frá þessu.

Það eru meðlimir dönsku kvikmyndaakademíunnar sem standa fyrir valinu.

Vetrarbræður fjallar um námuverkamanninn Emil og bróður hans en báðir vinna þeir í kalknámu. Elliott Crosset Hove, sem leikur Emil, var valinn besti karlleikarinn og Victoria Carmen Sonne var valin besta leikkonan í aukahlutverki. Auk þess fékk myndin verðlaun fyrir búninga, leikmynd, hljóð, myndatöku og förðun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Leyniskjöl sögð staðfesta skelfilegan dauðdaga íranskrar táningsstúlku sem mótmælti reglum um klæðaburð

Leyniskjöl sögð staðfesta skelfilegan dauðdaga íranskrar táningsstúlku sem mótmælti reglum um klæðaburð
Fréttir
Í gær

Vægur dómur fyrir ofbeldi í nánu sambandi

Vægur dómur fyrir ofbeldi í nánu sambandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bresku Rúanda-lögin koma illa niður á Írum – Setja neyðarlög

Bresku Rúanda-lögin koma illa niður á Írum – Setja neyðarlög
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þarf að sitja af sér fangelsisdóm í Noregi eftir afbrot á Ásbrú

Þarf að sitja af sér fangelsisdóm í Noregi eftir afbrot á Ásbrú