fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024

Samkvæmt nýrri rannsókn átt þú að eyða svona miklum tíma á samfélagsmiðlum

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 21. nóvember 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekkert leyndarmál að þegar þú eyðir miklum tíma á samfélagsmiðlum og færð endalausar upplýsingar um trúlofanir, frí, nýfædd börn og stöðuhækkanir í starfi þá getur þér farið að líða eins og þú sért ekki að áorka neinu merkilegu. Hins vegar getur það verið erfitt að loka á alla samfélagsmiðla og líta aldrei til baka.

Góðu fréttirnar eru þær, samkvæmt HuffPost, að nýlega gerði Háskólinn í Pennsylvaniu rannsókn á notkun samfélagsmiðla hjá ungmennum til þess að komast að því hve miklum tíma er í lagi að eyða við þessa iðju án þess að verða meint af.

Niðurstöðurnar voru þær að gott er að takmarka sig við þrjátíu mínútna notkun á dag en með því að gera það er fólk að minnka líkurnar á andlegri vanlíðan.

Það voru 143 ungmenni sem tóku þátt í rannsókninni sem skoðuðu notkun þeirra á Facebook, Instagram og Snapchat. Farið var yfir andlega heilsu þeirra með félagslegan stuðning, ótta við það að missa úr, einmanaleika, sjálfssamþykki, sjálfsvirði, kvíða og þunglyndi í viðmið. Ungmennunum var skipt niður í hópa, einn hópurinn notaði samfélagsmiðla eins og þau gerðu vanalega og hinn fékk aðeins að nota samfélagsmiðlana í tíu mínútur á dag. Rannsóknin stóð yfir í þrjár vikur og komist var að því að þeir sem notuðu samfélagsmiðla í mesta lagi í þrjátíu mínútur á dag upplifðu mikla breytingu til hins betra á andlegri heilsu sinni.

Rannsóknarteimið tók fram að ungmennin hafi einungis notað Iphone-a og aðeins hafi verið skoðuð notkun á þessum þremur miðlum. Segja þeir að ekki sé víst að hægt sé að yfirfæra niðurstöðurnar á hvaða aldurshóp sem er.

Sama hvað þá er eitt víst að allir hafa gott af því að minnka við sig notkun sína á samfélagsmiðlum, enda hafi fyrri rannsóknir sýnt fram á það að þeir sem eyði miklum tíma á Facebook séu líklegri til þess að upplifa þunglyndi og einmanaleika.

Stöðufærslur sambanda, myndir af mat og hundafilterinn verður enn til staðar þegar þú opnar Facebook-ið aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Klopp orðaður við endurkomu – Myndi taka að sér annað starf

Klopp orðaður við endurkomu – Myndi taka að sér annað starf
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fyrsti maðurinn inn á Anfield? – Mætti á leik liðsins

Fyrsti maðurinn inn á Anfield? – Mætti á leik liðsins
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

,,Þetta var komið gott eftir líflátshótanir”

,,Þetta var komið gott eftir líflátshótanir”
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Pabbi leikmannsins ekki hrifinn af stöðunni í London – ,,Snýst um peninga“

Pabbi leikmannsins ekki hrifinn af stöðunni í London – ,,Snýst um peninga“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna varðelds í garði – Reyndist vera tveir einstaklingar með kattareyru að grilla

Lögregla kölluð út vegna varðelds í garði – Reyndist vera tveir einstaklingar með kattareyru að grilla

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.