fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Blikur á lofti með raforkuframboð hefðbundinna orkukosta næstu árin – Nýrra leiða leitað í skýrslu Þórdísar

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 13. nóvember 2018 17:15

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hefur að beiðni Alþingis lagt fram skýrslu um nýjar aðferðir við orkuöflun. Einkum er fjallað um nýtingu vindorku, sjávarorku og varmaorku með varmadælum en einnig er stutt umfjöllun um aðra möguleika sem skipt geta auknu máli við orkuöflun á komandi árum. Ljóst er að hefðbundnum kostum í jarðvarma og vatnsafli fer fækkandi og því tímabært að huga að nýjum endurnýjanlegum kostum til að mæta fyrirsjáanlegri þörf, samkvæmt tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir stöðu og líklegri framtíðarþróun hagnýtingar þessara orkugjafa og fjallað um margvísleg tæknileg og umhverfisleg úrlausnarefni sem huga þarf að. Skýrslan var unnin í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu með aðkomu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Orkustofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samorku og fyrirtækja innan vébanda þeirra.

Samkvæmt uppfærðri raforkuspá Orkuspárnefndar fram til ársins 2050 fer almenn raforkunotkun í landinu jafnt og þétt vaxandi. Spáð er árlegri aukningu notkunar um 1,8% næstu 33 árin einkum vegna aukinnar raforkunotkunar almennings, aukins hraða í orkuskiptum og raforkunotkun í ferðaþjónustu. Ekki er reiknað með aukningu í raforkunotkun frá stóriðju umfram það sem búið er að semja um. Svarar þetta til um rúmlega einni og hálfri Búrfellsstöð sem er stórt orkuver með 270 MW uppsett afl og 2.300 GWst orkuvinnslugetu á ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum