fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Vörn öryggiskerfi – Leiðandi í öryggismálum

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 25. október 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vörn öryggiskerfi var stofnað árið 2008 af Jóni Á. Hermannssyni og hefur síðan vaxið og dafnað og er í dag í viðskiptum við 1200 fyrirtæki auk fjölda heimila. Átta manna teymi sér um sölu og uppsetningu á myndavélum um allt land.

„Vörn hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á alls kyns tækninýjungar og erum við ávallt með nýjasta og besta búnaðinn frá heimsþekktum framleiðendum. Við vorum með þeim fyrstu sem buðu uppá þann möguleika að skoða myndavélar í gegnum síma,“ segir Jón Ágúst. „Við erum með vörumerkið Dahua og bjóðum upp á 4k myndavélar sem eru 8 megapixla með nýrri gerð af nætursjón sem heitir Starvis. Hún virkar þannig að myndin verður ekki svarthvít að nóttu til, hún heldur lit og þannig er auðveldara að greina einstaklinga í miklu myrkri. Og 4k myndavélar eru það besta sem hægt er að fá í dag í almennum vélum, en þær eru samt á viðráðanlegu verði. Vélarnar henta vel bæði fyrir fyrirtæki og heimili.“

Jón Ágúst Hermannsson.

Fyrirtæki geta leitað tilboða, „við setjum upp og þjónustum stærri sem smærri fyrirtæki.“

Snjalltæknin vinsælust í dag

Snjalltæknin er í boði hjá Vörn og langflestir eru að snjallvæðast. „Það er gríðarlega vinsælt, það vilja allir geta haft stjórn á hlutunum í gegnum símann,“ segir Jón Ágúst. „Þú getur skoðað myndavélarnar í gegnum símann, getur kveikt og slökkt á þjófavörninni, kaffivélinni, heita pottinum í sumarbústaðnum svo dæmi sé tekið, það er hægt að gera allt með þessu kerfi í dag. Ef þú ert með þjófavörn og myndavélakerfi þá ertu fljótur að sjá í símanum hvað er að gerast, þú ert fljótari en öryggisfyrirtækið er að hringja í þig. Þannig getur þú sparað þér stórar upphæðir í vöktun.

Við erum leiðandi í tækninýjungum í öryggismálum og verslum við bestu fyrirtæki í heimi. Þjónustustöðin okkar er í Reykjavík, en við setjum upp öryggiskerfi um allt land.“

Gæðaeftirlitskerfi fyrir útgerðarfyrirtæki

Fyrir útgerðarfyrirtæki býður Vörn upp á gæðaeftirlitskerfi og er það komið upp hjá mörgum fyrirtækjum og er framarlega þar, sem dæmi má nefna Þorbjörn í Grindavík, GPG Seafood og Fiskmarkað Íslands. „Þessi fyrirtæki og fleiri nota myndavélakerfi sem gæðaeftirlitskerfi fyrir fiskvinnsluna og fleira, enda geta öryggismyndavélar hjálpað til við margt.“

Myndavélakerfi – vörn gegn einelti og skemmdarverkum í skólum

„Vörn hefur sett upp myndavélakerfi í fjölmarga skóla á höfuðborgarsvæðinu og hefur það reynst gott vopn í baráttunni gegn einelti. Skemmdarverk á skólalóðum geta kostað mikla fjármuni og eru nánast úr sögunni þegar myndavélar eru til staðar,“ segir Jón Ágúst.

Allar upplýsingar um Vörn öryggiskerfi má fá í síma 561-5600, netfanginu vorn@vorn.is og á heimasíðunni www.vorn.is.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum