fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
FókusKynning

Lífsstílsverslunin Bast gleður augað og andann

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 13. janúar 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hugmyndafræðin á bak við Bast er að bjóða upp á alls konar vörur sem tilheyra lífsstíl og heimili. Verslunin er staðsett á fyrstu hæð Kringlunnar, skammt frá Kaffitári og Hagkaupum. Heimilisvörur og búsáhöld eru mest áberandi í versluninni en einnig er þar til sölu mikið úrval fylgihluta og skartgripa frá Tosh og Uniform-peysur sem eru íslensk hönnun og að fullu framleiddar á Íslandi. Þessi samsetning er kannski óvenjuleg en þó engin tilviljun heldur endurspeglar hún það andrúmsloft sem Bast vill skapa og snýst um lífsstíl.

Bast býður upp á heimilis- og gjafavörur undir þekktum gæðamerkjum. Má þar nefna A Simply Mess, sem framleiðir gjafavörur fyrir heimilið en nafnið segir mikið um hvernig hönnuðurinn lítur til heimilisins: Hann sér það sem vettvang fyrir skapandi fólk. Enn fremur má nefna Bitz-borðbúnað, Södahl-rúmföt, Holms, DW Home og Vera Home-kerti og Peyrex-hægeldunarpotta.

Eitt af því vinsælasta í Bast eru Moscow Mule-bollarnir. Þá er gaman að segja frá hinni geysivinsælu pönnu sem einfaldar eldun á pokaeggjum til að gera réttinn gómsætan, Eggs Benedict.

Í Bast er mikið úrval af tækifærisgjöfum, meðal annars súkkulaði sem með fylgja skemmtilegar orðsendingar. Einnig eru til sölu pottaplöntur sem eru mjög vinsælar núna og gaman að lífga upp á heimilið í skammdeginu með grænum plöntum.

Góð þjónusta, breitt vöruúrval og sanngjarnt verð eru á meðal þess sem einkennir Bast. Ávallt er eitthvað nýtt og spennandi á döfinni. Fram til 15. janúar er 20% afsláttur af öllum vörum. Margt spennandi er framundan, til dæmis opnar Bast vefverslun í febrúar. Allar nýjungar eru tilkynntar á Facebook-síðu Bast.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hjá Bast færðu ýmiss konar tækifærisgjafir, brúðargjafir og afmælisgjafir, og margt til að prýða heimilið, til dæmis púða, kerti og servíettur – að ógleymdum viskustykkjunum og hekluðu borðtuskunum, en hvort tveggja hefur ávallt notið mikilla vinsælda.

Bast tekur inn nýjar vörur að minnsta kosti tvisvar í viku. Þess vegna er ávallt eitthvað nýtt og spennandi til að skoða. Fylgstu með á Facebook-síðu Bast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7