fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

„Árangur tekur sér aldrei frí“

Kynning

Gústi notar eigin reynslu til að hjálpa viðskiptavinum að öðlast betra líf

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 26. janúar 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur Ágúst Brynjarsson einkaþjálfari, eða Gústi eins og hann er betur þekktur, á fyrirtækið Betri heilsa – Betra líf, sem býður upp á einkaþjálfun í Sporthúsinu í Kópavogi, fjarþjálfun og matarráðleggingar.

„Ég glímdi sjálfur við ýmis heilsuvandamál þegar ég var yngri,“ segir Ágúst, sem er 27 ára gamall. „Ég var búinn að reyna allt og alla kúra, var að sleppa þessu úr mataræðinu og bæta öðru við, en ekkert gekk til lengdar. Ég missti einhver kíló einn mánuð og bætti þeim við aftur næsta mánuðinn.“

Gústi kynntist síðan hópi sem lagði fyrst og fremst áherslu á mataræðið, frekar en hreyfinguna. Þar átti hann helst að passa upp á neyta ráðlags skammts af próteini og borða jafnt og þétt yfir daginn og á tveimur árum missti hann 30 kíló.
„Fólk fór eðlilega að spyrja mig hvernig ég hefði farið að því og ég að segja því frá og gefa því góð ráð. Síðan fór fólk að mínum ráðum og fór að ná árangri, sem veitti mér mikla ánægju,“ segir Gústi.

Gústi áður en hann tók lífsstíl sinn í gegn.
Fyrir. Gústi áður en hann tók lífsstíl sinn í gegn.
Gústi eftir að hann breytti um lífsstíl.
Eftir Gústi eftir að hann breytti um lífsstíl.

Sótti um einkaþjálfaranám á síðasta degi

Í kjölfarið sótti hann um einkaþjálfaranámið í Keili á síðasta degi umsóknarfrestsins og komst inn. „Ég varð bara heillaður af náminu og hellti mér út í að læra sem mest.“

Vinir Gústa skoruðu á hann að byrja með like-síðu á Facebook og heimasíða er í vinnslu. „Flestir viðskiptavinir mínir hafa bætt líf sitt,“ segir Ágúst, „þótt allir hafi kannski ekki endilega misst mikinn fjölda kílóa. Ég er mikið á móti skyndilausnum/kúrum og vil frekar að fólk þjálfi jafnt og þétt og geri þetta að lífsstíll.

Ég gef leiðbeiningar um mataræði, en er meira að benda á hvernig þú átt að borða, frekar en hvað þú átt að borða. Ég er ekki með grjóthörð matarplön. Fjölskyldufólk er til dæmis ekki að fara að hlýða því til lengri tíma að borða kjúkling, sætar kartöflur og soðið grænmeti. Allar uppskriftir sem ég er með henta vel, hvort sem er fyrir einn eða heila fjölskyldu.

Ég hitti alla sem eru í fjarþjálfun hjá mér minnst einu sinni áður en þeir byrja, hafi þeir tök á því, og tek þá í líkamsstöðu- og ástandsgreiningu. Þá sé ég hver helstu stoðkerfavandamálin eru. Ég býð fólki að koma í ákveðin þolpróf og hreyfipróf, og þá sé ég kannski einhver vandamál sem viðkomandi jafnvel vissi ekki af.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Býður upp á smáforrit til að halda utan um æfingar

„Það er algengt að fólk í fjarþjálfun fái blað með æfingum sem það á að gera og síðan hefur viðkomandi ekki hugmynd um hvernig hann á að gera þær,“ segir Gústi. „Ég býð fólki hjá mér upp á að fá aðgang að appi, sem heitir Trainerize. Þá eru þar myndbönd sem ég hef tekið af sjálfum mér eða af netinu. Þú ýtir á æfinguna og skoðar hana í tölvunni heima eða í snjallsímanum þegar þú ert í ræktinni ef þú manst ekki hvernig þú átt að gera æfinguna.“

Gústi skráir æfingu og hversu oft á að gera hana og hvaða þyngd á að nota. Viðskiptavinurinn merkir svo við þegar hann lýkur æfingunni.

Gústi býður viðskiptavinum sínum upp á mælingu og eru þær upplýsingar skráðar inn í appið. Þannig getur hann séð kúrfu af þyngd og árangri, auk þess sem hlaða má árangursmyndum inn. Hætti viðskiptavinur í þjálfun í ákveðinn tíma og byrjar síðan aftur geymast einfaldlega upplýsingar hans í appinu.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Fylgist ávallt með árangri sinna viðskiptavina

„Jafnvel þó að einhver hætti hjá mér, þá mun ég alltaf fylgjast með viðkomandi af og til,“ segir Gústi. „Hvort viðkomandi sé enn að æfa, ná árangri og svo framvegis. Viðskiptavinir mínir vita að þeir geta alltaf heilsað upp á mig og fengið ráðleggingar þó að þeir séu ekki að æfa hjá mér akkúrat þá stundina. Þeir vita að þeir eru orðnir hluti af þessari litlu fjölskyldu.“

Gústi hefur laðað að sér ýmsa viðskiptavini sem eiga við verki eða yfirþyngd að stríða, þar sem hann hefur sjálfur reynslu af slíku. „Margir sem leita til mín eiga einhverja vandamálasögu vegna hreyfingarleysis eða meiðsla en auðvitað er fjöldinn allur af fólki sem vill bara fínpússa árangurinn í ræktinni. Mér finnst ekkert skemmtilegra en sjá fólk ná árangri og bæta lífsgæðin.“

Afsakanir eru ekki í boði

„Ég get orðið grimmur þegar fólk kemur með afsakanir, ég vil frekar að fólk mæti á æfingu og við bara teygjum á eða gerum eitthvað uppbyggjandi,“ segir Gústi. „Ef þú ert einu sinni búinn að nýta þér afsökun þá muntu nýta hana aftur.“
Á miðvikudögum setur Gústi inn æfingu á Facebook-síðuna sína, æfingu sem taka má hvar sem er, hvort sem er heima fyrir eða á hótelherbergi erlendis. „Árangur tekur sér ekki frí,“ segir Gústi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum