fbpx
Mánudagur 15.september 2025
FókusKynning

18 Rauðar rósir er tíu ára!

Kynning

Tilboð á íslenskum rósum út október

Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 26. október 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

18 Rauðar rósir er gamalgróin blómaverslun í hjarta Kópavogs. Búðin var stofnuð þann 20. október árið 2006 og hélt því upp á tíu ára afmæli síðastliðinn fimmtudag. Í tilefni þeirra tímamóta verður nú tilboð á öllum íslenskum rósum út október. Því er um að gera að líta við og grípa með sér nokkrar íslenskar rósir og færa makanum, nú eða til að gleðja sjálfan sig.

„Það kom einmitt einn íslenskur víkingur til mín í dag og keypti af mér búnt af íslenskum rósum. Hann vill hvetja íslenska karlmenn til þess að vera rómantískari og er ég honum hjartanlega sammála,“ segir eigandi verslunarinnar, Sigríður I. Gunnarsdóttir, eða Didda eins og hún er oftast kölluð. 18 Rauðar rósir býður einnig upp á heimsendingarþjónustu á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hverjum þykir ekki gaman að fá óvæntar blómasendingar?

18 Rauðar Rósir.
18 Rauðar Rósir.

Didda býr yfir áratugareynslu í blómabransanum. „Við höfum alltaf lagt ríka áherslu á að bjóða upp á glæsilegt úrval á íslenskum blómum og gjafavöru sem hentar við öll tækifæri,“ segir Didda. Ásamt því sem starfsmenn kappkosta að veita viðskiptavinum sínum persónulega og faglega þjónustu, býður búðin upp á fjölbreytta og glæsilega gjafavöru.

Meðal þeirra íslensku hönnuða sem 18 Rauðar rósir selur vörur fyrir eru: AUNTS DESIGN, Flóki & Co., IHANNA HOME, heklaíslandi, SveinBjörg, Þóra Sigurþórs, Jónsdóttir & Co., Magga myndlist, Elísabet Ásberg, Krista Design, JB art, Hjartalag og hið sívinsæla konfekt frá Hafliða Ragnarssyni í Mosfellsbakaríi. Fuzzy-kollurinn fæst einnig í 18 Rauðum rósum. Að auki er að finna stórbrotið úrval erlendra framleiðenda og þar á meðal eru gómsætar franskar sælkerarvörur frá Nicolas Vahé.

18 Rauðar rósir er til húsa að Hamraborg 3, 200 Kópavogi.
Hafa má samband í síma 554-4818 eða í gegnum tölvupóst í 18raudarrosir@18raudarrosir.is.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu 18 Rauðra rósa, www.18raudarrosir.is og á Facebook-síðu verslunarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
19.02.2024

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri