Akur Fjárfestingar og Horn III inn í hluthafahóp fyrirtækisins
Framtakssjóðirnir Akur fjárfestingar og Horn III hafa ásamt hópi einkafjárfesta keypt 69% hlut í Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni ehf. Seljendur eru Eignarhaldsfélagið Þorgerður ehf., F-13 ehf og Lind ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ölgerðinni.
„Ölgerðin Egill Skallagrímsson er afar spennandi fyrirtæki og það er með mikilli tilhlökkun sem við bætumst í hóp eigenda félagsins. Ölgerðin, sem er í hópi öflugustu fyrirtækja landsins, hefur alla burði til að vaxa frekar og nýta þau sóknartækifæri sem til staðar eru á markaði,“ segir Hermann Már Þórisson, framkvæmdastjóri Horns III. Sjóðurinn er í eigu lífeyrissjóða, fjármálafyrirtækja og fagfjárfesta. Akur fjárfestingar er rekinn af Íslandssjóðum og í eigu lífeyrissjóða og fjármálafyrirtækja.
Núverandi stjórnarformaður Ölgerðarinnar, Októ Einarsson og forstjóri félagsins, Andri Þór Guðmundsson eru ekki þátttakendur í sölunni og munu því áfram eiga stærsta einstaka hlutinn í félaginu í gegnum félag sitt, OA Eignarhaldsfélag ehf. Í kjölfar viðskiptanna stefna eigendur að því að auka hlutafé Ölgerðarinnar til að styðja við innri vaxtaráform félagsins.
„Eignarhaldsfélagið Þorgerður ehf. var stofnað árið 2010 í þeim tilgangi að halda utan um fjárfestingu í 45% kjölfestuhlut í Ölgerðinni. Stærsti hluthafi Eignarhaldsfélagsins Þorgerðar er Auður I fagfjárfestasjóður með yfir 60% hlut. Auður I fagfjárfestasjóður var stofnaður árið 2008 og er hann í eigu lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta. F-13 er félag í eigu nokkurra lykilstjórnenda Ölgerðarinnar. Lind er í eigu fyrrverandi aðaleigenda Ölgerðarinnar hjónanna Einars F. Kristinssonar og Ólafar Októsdóttur. Þau seldu megnið af hlut sínum í Ölgerðinni árið 2007 en Einar hefur setið í stjórn Ölgerðarinnar frá 2002. Þau hverfa nú endanlega frá rekstri Ölgerðarinnar með þessari sölu,“ segir í tilkynningunni.
„Við fögnum nýjum aðilum í eigendahóp Ölgerðarinnar. Þetta er 103 ára gamalt fyrirtæki sem er vel rekið og skipar sérstakan sess í hugum landsmanna, með sterk vörumerki og mikil tækifæri, ekki síst á sviði útflutnings,“ segir Októ Einarsson.