

Móðir 11 ára gamallar stúlku frá bænum Lansing í Kansas er æf eftir að skólinn bannaði dóttur hennar að klæðast leggings buxum. Segir hún að dóttur sinni hafi verið tjáð að ástæðan væri sú að strákarnir myndu ekki geta haft stjórn á sér í kringum hana ef hún klæddist fatnaði af þessu tagi.
Hin umrædda móðir, Kimberly Jones vekur athygli á málinu á færslu á fésbók sem farið hefur víða undanfarna daga en atvikið átti sér stað seinasta miðvikudag. Þá birtir hún einnig mynd af dóttur sinni í leggins buxunum sem þóttu vera óviðeigandi að mati skólastjórnenda.
Segir hún dóttur sína hafa haft samband við sig í miklu uppnámi og tjáð sér að hún hefði verið kölluð inn á skrifstofu skólastjóra vegna brota á reglum skólans um klæðaburð. Hún hafi þvínæst verið neydd til þess að skipta um föt og klæðast lánsbuxum frá skólanum þar sem að leggins buxurnar hennar þóttu of stuttar samkvæmt reglum skólans, en starfsmaður hafði mælt buxurnar að framan og aftan.
„Í hvers konar heimi er það í lagi að úthrópa og niðurlægja barn yfir klæðaburði eins og þessum?“ ritar Jones og er mikið niðri fyrir. Spyr hún því næst: „Lifum við á nítjándu öld?“
Skólinn hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem fram kemur að skýrt sé tekið fram í nýjum reglum skólans að leggins buxur séu bannaðar. Þá fullyrða stjórnendur skólans að þeir vinni ötullega að því að „skapa gott og árangursríkt umhverfi til náms og sýni um leið foreldrum og nemendum virðingu.“