fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Þorgerður vill nýjan gjaldmiðil: „Krónan hefur reynst okkur dýrkeypt spaug. Horfumst í augu við það“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 7. ágúst 2018 13:00

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, talar fyrir upptöku nýs gjaldmiðils í pistli sínum í Fréttablaðinu í dag. Hún segir íslensku krónuna ástæðuna fyrir sveiflukenndu umhverfi í efnahagsmálum landsins:

„Enn og aftur heyrum við fréttir um fyrirtæki sem heyja erfiða rekstrarbaráttu og undantekningarlaust er bent á orsakavaldinn, styrkingu krónunnar. Óvissan innan ferðaþjónustunnar er mikil, bændur standa í kunnuglegri baráttu og litlar fiskvinnslur sem og nýsköpunarfyrirtæki eiga erfitt með fótfestu í þessu sveiflukennda umhverfi.

Þessa sögu þekkjum við öll og höfum lifað með henni. Óvissuna sem fylgir krónunni má hins vegar sjaldan ræða nema út frá þeirri forsendu einni að við Íslendingar verðum að viðhalda núverandi gjaldmiðli. Það sé okkar eini kostur. Að betra sé að stagbæta okkar örgjaldmiðil í stað þess að horfast í augu við þann gríðarlega kostnað og áhættu sem sveiflukennd krónan er fyrir heimili, launþega og fyrirtækin í landinu. En sveiflur krónunnar, ólíkt þeirri skagfirsku, eru enginn gleðigjafi. Íslenskt atvinnulíf sem og heimili eru berskjaldaðri en aðrar þjóðir með stöðuga mynt. Ef einhver alvara er í því að vinna að langtímastöðugleika er þetta atriði sem aðilar vinnumarkaðarins ættu að koma sér saman um því hugrekkið í gjaldmiðilsmálum er ekki að finna við ríkisstjórnarborðið.“

Þorgerður segir ekki beinum orðum að hún vilji taka upp evruna, né neinn annan gjaldmiðil, en vill þó kanna hvaða aðrar leiðir eru færar heldur en íslenska krónan:

„Viðreisn mun halda áfram að beita sér fyrir umræðu um íslensku krónuna og hvaða aðrar leiðir eru færar í gjaldmiðilsmálum, heimilum og atvinnulífi til heilla. Það verður að vera hægt að ræða upphátt, án útúrsnúninga og heilagrar þjóðernishyggju, hvort réttlætanlegt sé að viðhalda gjaldmiðli sem þvingar almenning og fyrirtæki í óþarfa kostnað, áhættu og óvissu.

Það er ekki sanngjarnt að almenningur sitji eftir með krónuna og kostnaðinn sem henni fylgir á meðan tiltekin fyrirtæki tryggja sig með því að gera upp í erlendri mynt og hafa aðgang að ódýru erlendu fjármagni. Krónan hefur reynst okkur dýrkeypt spaug. Horfumst í augu við það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta