fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
433

Elías Rafn semur við dönsku meistarana

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 17. júlí 2018 09:05

Mynd: Blikar.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breiðablik og FC Midtjylland hafa komist að samkomulagi um að Elías Rafn gangi til liðs við síðarnefna félagið núna í júlí. FC Midtjylland urðu danskir meistarar í annað sinn í vor.

Elías Rafn byrjaði ungur að æfa knattspyrnu með Breiðablik hefur verið í félaginu frá upphafi fyrir utan einn vetur sem fjölskyldan bjó á Húsavík. Hann hefur verið reglulegur partur af meistaraflokkshópi Breiðabliks undanfarin tvö keppnistímabil en sumarið 2017 var Elías lánaður í FH til að æfa með meistaraflokki þeirra.

Elías hefur leikið 3 unglingalandsliðsleiki fyrir Íslands hönd með U17 í knattspyrnu en hann á líka fjölda unglingalandsleikja og einn A landsleik í blaki.

Elías er fjórði leikmaðurinn úr 2000 árganginum sem gengur til liðs við atvinnumannalið erlendis. Fyrr í sumar fór Patrik S. Gunnarsson til Englands og á síðasta ári fóru þeir Arnór Borg Guðjohnsen og Ágúst Eðvald Hlynsson til erlendra liða.

Blikar óska Elíasi til hamingju með þennan áfanga og um leið velfarnaðar á nýjum slóðum. Það verður gaman að fylgjast með okkar manni hjá dönsku meisturunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta eru launin sem Mbeumo mun fá hjá United

Þetta eru launin sem Mbeumo mun fá hjá United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United smellir þessum verðmiða á Garnacho – Chelsea sagt skoða málið

United smellir þessum verðmiða á Garnacho – Chelsea sagt skoða málið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Henderson gæti snúið aftur í enska boltann – Öflugt lið hefur áhuga

Henderson gæti snúið aftur í enska boltann – Öflugt lið hefur áhuga
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Frá Manchester til Suður-Frakklands

Frá Manchester til Suður-Frakklands
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Frank sækir spennandi Japana sem hann hyggst nota strax

Frank sækir spennandi Japana sem hann hyggst nota strax
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Samfélagið í áfalli í kjölfar andláts

Samfélagið í áfalli í kjölfar andláts
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Goðsögn varar Trent við

Goðsögn varar Trent við
433Sport
Í gær

Sjáðu harkaleg slagsmál í Kópavogi í gær – Kom í kjölfar þess að umdeildur dómur hafði fallið

Sjáðu harkaleg slagsmál í Kópavogi í gær – Kom í kjölfar þess að umdeildur dómur hafði fallið
433Sport
Í gær

Reiðir Vesturbæingar létu í sér heyra í gær – Óskar skýtur á kollega sinn

Reiðir Vesturbæingar létu í sér heyra í gær – Óskar skýtur á kollega sinn