Bandaríska fjölmiðlakonan Brooke Baldwin gerði HM í fótbolta að umtalsefni sínu í þættinum Newsroom á CNN í síðustu viku. Það voru þó ekki úrslit leikja sem vöktu athygli Baldwin heldur hegðun karlkyns stuðningsmanna í garð fjölmiðlakvenna.
Í fréttaskýringunni sem sjá hér sýnir hún nokkur dæmi um menn sem áreita fréttakonur við störf þar á meðal íslenskan stuðningsmann. Maðurinn sem er vel merktur íslenska landsliðinu halar sér upp að fréttakonu í beinni útsendingu og setur andlitið á sér þétt upp að andliti konunnar.
Hann er að lokum dreginn í burtu með valdi. „Horfið á þetta. Þær eru bara að vinna sína vinnu. Það er káfað á þeim og þær kysstar,“ segir Baldwin.
Síðar í fréttinni sýnir Baldwin þegar maður ryðst inn í beina útsendingu og kyssir kólumbíska fréttakonu og grípur í brjóst hennar. Þá bendir hún á þá staðreynd að af þeim 16 þúsund blaðamönnum sem staddir eru í Rússlandi til að fjalla um HM séu aðeins rúmlega 2500 konur.