fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Rekstrarstjóri Plain Vanilla: „Okkur mistókst“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 1. september 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nú tekur við naflaskoðun á retróspectives og feelings fundum og blog um síðustu misseri. Og frí,“ segir Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson rekstrarstjóri Plain Vanilla sem framleiðir spurningaleikinn QuizUp. Vísar hann þar í fregnir gærdagsins um þá ákvörðun að loka skrifstofum fyrirtækisins hér á landi og segja upp öllum starfsmönnum. Líkt og DV greindi frá hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hætt við að framleiða sjónvarpsþáttaröð undir merkjum QuizUp og kom fram í tilkynningu frá fyrirtækinu að þegar ljóst var að ekki yrði af framleiðslu þáttarins brustu rekstrarforsendur til frekari fjármögnunar og þróunar á QuizUp hér á landi.

„Þetta er mjög eðlilegur partur af sprotarokkinu og áhættunni sem við tókum,“ ritar Gunnar í einlægri færslu á fésbókarsíðu sinni í dag. Þá bætir hann við:

„Þetta er búið að vera algjört ævintýri en ég vil alls ekki sykurhúða þetta. Okkur mistókst.“

Þá viðurkennir Gunnar að fyrirtækið hafi spennt bogann ansi hátt en mistökin eru til að læra af þeim:

„Þegar ég fékk fréttirnar að ekkert yrði af þætti á NBC fannst mér eins og að ég hefði fengið vinstri krók í magann frá Gunnari Nelson. Ég er sár. Margir voru búnir að vara okkur við því að þeim í Hollywood gæti snúist hugur hratt. Ég trúði því ekki. Barnsleg bjartsýni.

Það er margt sem ég hefði viljað gera betur. Margt sem ég geri öðruvísi næst. Eitt er víst. Ég vil vinna með Plain Vanilla starfsmönnum aftur. Er í vandræðum með að velja hvaða hugmynd tekur næst við. Getum örugglega stofnað fimm ný fyrirtæki út frá hópnum sem er með okkur í dag.“

Þá fer hann einnig fögrum orðum um Þorsteinn B. Friðriksson, stofnanda fyrirtækisins. „Ég hef lært sérstaklega mikið af honum. Hann er brjálæðislega ástríðufullur vöruhönnuður sem veitir hverju smáatriði sérstaklega athygli. Hann er einn sá allra besti í að leysa úr ágreiningi og hefur kennt mér að vera betri og mannúðlegri stjórnandi. Held að enginn hafi kennt mér jafn mikið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova