,,Veiðin er komin af stað í Leirvogsá og fyrsta daginn veiddi Skúli Skarphéðinsson 11 laxa. En hann þekkir ána einkar vel en hann var þarna við veiðar ásamt fleirum,“ sagði Jóhann Davíð Snorrason hjá Laxá er við spurðum opnun Leirvogsár.
,,11 laxar náðust fyrsta daginn en nokkrir sluppu og þetta var mest kringum brúna niður frá. Svo fylgdu í kjölfarið ellefu laxar daginn eftir,“ sagði Jóhann Davíð um Leirvogsá sem byrjar vel. 22 laxar á fyrstu tveimur dögunum er flott byrjun svo ekki sé meira sagt.
Mynd. Skúli Skarphéðinsson með lax úr opnun Leirvogsár.