fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og réttindabaráttu kvenna minnst á morgun

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 18. júní 2018 16:00

Dóra Björt Guðjónsdóttir. Mynd/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blómsveigur verður lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur á kvenréttindadegi íslenskra kvenna á morgun, þriðjudaginn 19. júní kl. 11:00. Dóra Björt Guðjónsdóttir, verðandi forseti borgarstjórnar  leggur blómsveiginn að leiðinu og flytur stutt ávarp og mun Ólöf Arnalds syngja nokkur lög, samkvæmt tilkynningu. Viðburðurinn er haldinn í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu og er öllum velkomið að koma og eiga hátíðlega stund í minningu Bríetar og réttindabaráttu kvenna.

Bríet Bjarnhéðinsdóttur átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands og var fyrsti formaður félagsins frá stofnun allt til ársins 1928. Markmið félagsins var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.

Konur í Reykjavík buðu fram Kvennalista fyrir bæjarstjórnarkosningar árið 1908 og var það fyrsta sér framboð kvenna á Íslandi.

Þann 19. júní  árið 1915 fengu giftar konur kosningarétt og kjörgengi í Reykjavík og Hafnarfirði og öðluðust þar með sjálfstæði frá eiginmönnum sínum til pólitískrar þátttöku, en ekkjur og ógiftar konur höfðu þá haft kosningarétt í um aldarfjórðung. Tveimur árum síðar fengu konur í öðrum sveitarfélögum sömu réttindi.

Bríet lést í Reykjavík árið 1940.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að