Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sendi karlalandsliði Íslands í knattspyrnu kveðju frá ríkisstjórn Íslands í dag. Bréfinu var komið á framfæri í gegnum sendiráð Íslands í Moskvu, samkvæmt tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Ríkisstjórnin ákvað að sniðganga Heimsmeistaramótið í knattspyrnu vegna meintrar eiturefnaárásar Rússa í bænum Salisbury í Englandi, til að sýna öðrum vestrænum þjóðum samstöðu.
Eliza Reid forsetafrú, verður hinsvegar fulltrúi Íslands á leiknum gegn Argentínu í Moskvu í dag, en Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, vildi ekki ganga gegn vilja ríkisstjórnarinnar í málinu með því að fara til Rússlands. Verður hann á Hrafnseyri í dag í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands.
Bréfi Katrínar er svohljóðandi:
Kæru knattspyrnukappar!
Ég vil að þið vitið að þjóðin öll er ótrúlega stolt af ykkar góða árangri.
Sá hluti þjóðarinnar sem ekki er þegar mættur til Rússlandstil að hvetja ykkur til dáða mun án efa sitja
límdur fyrir framan sjónvarpsskjáinn og hvetja ykkur áfram af jafn miklum krafti að heiman.
Við erum öll með ykkur í anda.
Áfram Ísland!
Með baráttukveðju frá ríkisstjórn Íslands
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra