Sumarbústaður á Borgarnesi í eigu Valgeirs Reynissonar var lagður í rúst á dögunum. Bústaðurinn var glænýr og í raun ófullbúinn að sögn Valgeirs. Hann hafði unnið í smíðunum í dágóðan tíma og var kominn langt á leið, en segir hann nú að skemmdirnar flytji framkvæmdirnar aftur á byrjunarreit og þykir honum það miður. Hjólhýsi Valgeirs, sem stóð á lóðinni, var einnig lagt í rúst.
„Það er búið að brjóta, bramla og eyðileggja allt. Gjörsamlega allt,“ segir Valgeir, sem hefur kært málið til lögreglu og vinnur hörðum höndum að komast til botns í málinu. Bætir hann við að þetta hafi komið móður sinni á óvart, en hún var á leið í bústaðinn ásamt eiginmanni sínum þegar skemmdirnar uppgötvuðust.
„Ég var erlendis þegar þetta átti sér stað, en þau komu að staðnum síðustu helgi og voru vel skelkuð,“ segir hann og tekur fram að hann sé óviss um hvort sambærileg tilfelli hafi átt sér stað í grendinni, þó aldrei sé að vita hver verður næstur þegar svona kemur upp.
Valgeir birti ljósmyndir af skemmdunum á Facebook-síðu sinni og tekur þar fram að peningaverðlaun eru í boði þeim sem vita nánar um málið. Þó gruni hann tvo tiltekna aðila sem hann þekkir til og er handviss um að málið sé persónulegt.
Neðangreindar myndir eru birtar með leyfi Valgeirs.