Athyglisverð orðaskipti áttu sér stað í útvarpsþættinum Brennslunni á FM957 á föstudag — daginn fyrir kjördag, þar sem Hjörvar Hafliðason útvarpsmaður og knattspyrnuspekingur ræddi við fulltrúa sjálfstæðisflokksins sem var að bjóða sig fram í kosningunum.
Sjálfstæðiskonan unga tiltók sérstaklega að hún væri í öruggu sæti án þess að hafa nokkru sinni tekið þátt í ungliðastarfi flokksins. Hjörvar henti þetta á lofti og taldi gríðarlega mikilvægt að fá fram fólk sem ekki væri litað af ungliðastarfinu og öllu því sem því fylgdi.
Mörgum hlustendum þóttu þetta athyglisverð orðaskipti, því unnusta Hjörvars er engin önnur er lögmaðurinn Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Félags fyrirtækja í sjávarútvegi, en hún var á árum áður formaður Heimdallar, ungliðafélags Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og forystukona í SUS.