fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Arnar Þór er nýr stjórnarformaður Tryggingastofnunar

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 25. maí 2018 13:02

Arnar Þór Sævarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Sævarsson er nýr formaður stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins. Ásmundur Einar Daðason hefur skipað stjórn stofnunarinnar í samræmi við 11. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Samkvæmt lögunum skipar ráðherra fimm menn í stjórn Tryggingastofnunar, formann og varaformann og jafnmarga menn til vara. Stjórn Tryggingastofnunar staðfestir skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og markar stofnuninni langtímastefnu. Stjórnin skal einnig hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé í samræmi við stefnuna og innan ramma fjárlaga á hverjum tíma. Formaður stjórnar skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stofnunarinnar og hann skal einnig gera ráðherra viðvart ef starfsemi, þjónusta eða rekstur stofnunarinnar er ekki í samræmi við lög eða stjórnvaldsfyrirmæli.

Skipunartími stjórnarinnar er til næstu alþingiskosninga. Hún er svo skipuð:

Aðalmenn

  • Arnar Þór Sævarsson, formaður stjórnarinnar
  • Ásta Möller, varaformaður
  • Elsa Lára Arnardóttir
  • Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
  • Sigursteinn Másson

Varamenn

  • Ingibjörg Isaksen
  • Petrea Ingibjörg Jónsdóttir
  • Jóhann Friðrik Friðriksson
  • Bergþór Heimir Þórðarson
  • Guðbjörg Sveinsdóttir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum