Þessi er æðisleg í saumaklúbbinn, veisluna eða þegar á að gera vel við sig. Gott að bera fram með baguette eða kexi.
Uppskrift
1/2 gullostur
1 lúka pekanthnetur
1 lúka döðlur
2 msk villiblómahunang
Aðferð:
- Skerið gullostinn langsum, hitið ofnin á 180°c
- Skerið döðlurnar í 4 hluti og skerið pekanthneturnar gróft.
- Setjið helminginn sem þið ætlið að nota af gullostinu á bökunarpappír.
- Dreyfið hnetunum og döðlunum yfir gullostinn
- hellið hunanginu yfir allt saman
- inní ofn í ca 10 min.
Uppskriftin birtist upphaflega á Öskubuska.is