fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur gagnrýndi Öryggisráðið á allsherjarþinginu: „Fyrirmunað að taka á aðkallandi málum“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 25. apríl 2018 08:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staða mála í Sýrlandi og Jemen og ábyrgð öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna var á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, gerði að umtalsefni í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær.

„Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ber að tryggja frið, en er fyrirmunað að taka á aðkallandi málum. Öryggisráðið verður að gera betur og axla ábyrgð – þúsundir mannslífa eru í húfi,“

sagði Guðlaugur Þór í ræðu sinni.

Þá ræddi ráðherra mikilvægi þess að ráðast að rótum vandans og að Sameinuðu þjóðirnar legðu aukna áherslu á að koma í veg fyrir átök.

„Það er til lítils að slökkva eldinn ef upptök hans eru ennþá fyrir hendi. Þá mun kvikna bál að nýju. Að ráðast að upptökum eldsins er skilvirkara, ódýrara og bjargar fleiri mannslífum,“ sagði Guðlaugur Þór ennfremur og beindi að lokum orðum sínum að aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. „Sameinuðu þjóðirnar eru aldrei sterkari en aðildarríkin leyfa. Við, aðildarríkin, verðum að stíga upp og styðja við Sameinuðu þjóðirnar og störf framkvæmdastjórans,“

sagði Guðlaugur Þór.

Þá átti utanríkisráðherra fund með Ine Eriksen Søreide, utanríkisráðherra Noregs, þar sem þróun mála í Evrópu, framkvæmd EES samningsins og Brexit voru meðal umræðuefna.

Ræða ráðherra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður