fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

„Norðurlönd ættu að búa í haginn fyrir fyrirtæki sem hyggja á útflutning á grænum lausnum“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 14:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýrri skýrslu er nefnist „Góðir grannar – Norðurlönd á tímum grænna umskipta,“  sem unnin var af Tinu Sundtoft, fyrrum umhverfis- og loftslagsráðherra Noregs að beiðni norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfis- og loftslagsmál, segir að Norðurlönd geti boðið upp á þróaðar lausnir er kemur að meðhöndlun vatns, orku, úrgangs, græns borgarskipulags og samgangna. Skýrslan byggir á tæplega 120 samtölum sem Sundtoft átti við stjórnmálafólk, embættisfólk, umhverfissamtök og fulltrúa atvinnulífs á Norðurlöndum og alþjóðlega. Kynnir hún tólf stefnumótandi tillögur um sóknarfæri í norrænu samstarfi um umhverfis- og loftslagsmál.

„Norðurlönd ættu að búa í haginn fyrir fyrirtæki sem hyggja á útflutning á grænum lausnum. Engin ástæða er til að gera lítið úr mætti norræna vörumerkisins. Löndunum er jafnframt akkur í því að vinna saman að grænni fjármálamörkuðum,“

segir Sundtoft.

Með norrænu samstarfi getur verðmæti útflutnings á alþjóðlega markaði aukist enn meira segir í skýrslunni:

„Staða okkar er sterk á sviði tækni og þekkingar, einnig við löggjafarstarf sem önnur ríki heims gætu nýtt sér í grænum umskiptum. Ef við komum auga á það sem við eigum sameiginlegt getum við stuðlað að lausn umhverfisvanda en jafnframt skapað norrænan virðisauka.“

 

Öflugri í samkeppni ef þjóðirnar leggjast á eitt

Tine Sundtoft getur þess að norræn fyrirtæki finni nú þegar fyrir því að landsbundnir fyrirtækjaklasar megi sín lítils gagnvart sóknarfærum á hnattrænum mörkuðum. Auk þess geti löndin bætt hvert annað upp með færni og lausnum milli landa.

Í skýrslunni kemur fram að Norðurlönd búa nú þegar að mörgum lausnum sem þarf til að framfylgja Parísarsamkomulaginu um loftslagsmál og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á sviði umhverfis- og loftslagsmála.

„Með sameiginlegri útrás geta löndin markaðssett og kynnt lausnir sínar í sameiginlegum heildarpakka. Fyrirtækin eru búin að uppgötva þann gífurlega kraft sem felst í norræna vörumerkinu,“

segir Tine. Í skýrslunni leggur hún til að umhverfis- og loftslagsráðherrarnir eigi samráð við atvinnuvegaráðherrana og fylgi eftir þeirri reynslu sem fengist hefur í samstarfi um útflutningsmál.

„Fjármögnun landsbundinna aðgerða á sviði grænna lausna getur haft örvandi áhrif á atvinnulífið og aukið arðbærni fyrirtækja. Það eykur lögmæti metnaðarfullrar stefnu landanna í umhverfis- og loftslagsmálum. Ef við eigum að halda forskoti á heimsmörkuðum til framtíðar verðum við að sjálfsögðu að huga jafnt og þétt að rannsóknum og þróun.“

Skapa staðla fyrir grænni fjármálamarkaði

Mikil þörf er á því að beina fjárfestingum einkaaðila og hins opinbera til að efla græn umskipti. Til þess að Norðurlönd geti stutt við starf framkvæmdastjórnar ESB að grænni fjármálamörkuðum leggur Tine Sundtoft til að umhverfis- og loftslagsráðherrarnir kalli til leiðtogafundar með norrænum lykilaðilum á sviði þróunar grænni fjármálamarkaða:

„Þörf er á breiðu samstarfi til þess að koma sér saman um skilgreiningar og staðla fyrir grænar fjárfestingar og fjárfestingarafurðir. Við þurfum gagnsæ og sambærileg gögn um græna fjárfestingarkosti og áhættu fyrir umhverfið og andrúmsloftið.“

Skýrslan Góðir grannar – Norðurlönd á tímum grænna umskipta er unnin að beiðni norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfis- og loftslagsmál. Hún byggir á tæplega 120 samtölum sem Tine Sundtoft átti við stjórnmálafólk, embættisfólk, umhverfissamtök og fulltrúa atvinnulífs á Norðurlöndum og alþjóðlega.

Skýrslan í heild sinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að