fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Eyjan

Úrslit prófkjörsins

Egill Helgason
Laugardaginn 5. nóvember 2005 23:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar þetta er skrifað, á laugardagskvöldi, virðist Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafa unnið góðan sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Gísli Marteinn situr í þriðja sæti, en í öðru sætinu er Hanna Birna Kristjánsdóttir sem er annar sigurvegari prófkjörsins. Úrslitin má hæglega lesa sem svo að hún sé arftakinn í borginni, númer tvö, á eftir Vilhjálmi. Vonbrigði Gísla hljóta að vera talsverð. Hann tók mikla áhættu sem ekki gekk upp; það var við því að búast að ef hann tapaði baráttunni við Vilhjálm gæti hann farið á ferð niður listann.

Annars hef ég ekki haft neina tilfinningu fyrir því hvernig prófkjörið myndi fara. Þó fannst manni síðustu dagana eins og það væri viss sveifla með Gísla Marteini. Fleiri höfðu orð á þessu við mig. Hallgrímur var á Laugaveginum í dag og hélt að Gísli myndi vinna – taldi það betra fyrir borgina. Svo hitti ég Svein Andra, sem eitt sinn var borgarfulltrúi; hann var að labba með hundinn sinn og sagði að Villi myndi fá 60 prósent. Þá hætti ég að þykjast vita neitt um þetta.

— — —

Það er hins vegar gaman að heyra sögur af rosalegri smölun, menntaskólanemum sem var mútað með pizzum (er virkilega hægt að kaupa einhvern með pizzu lengur?), sms-skilaboðum sem flugu látlaust frá frambjóðendum, símtölum frá þartilgerðum fyrirtækjum þar sem maður lendir í að tala við ungt fólk með vélrænar raddir, rútuförmum af ungu fólki sem var flutt á kjörstað – og svo rónunum í bænum sem voru orðnir svo þreyttir á prófkjörinu að þeir voru farnir að biðja sér vægðar.

Eftir á er þetta samt pínu dapurlegt, svona eins og dagurinn eftir mikla veislu – sjálfsagt margir reikningar að borga.

— — —

Annars minna prófkjör Sjálfstæðisflokksins, sem og landsfundur hans, mann á að flokkurinn er fjöldahreyfing. Það er merkilegt að fylgjast með sveiflunni í kringum prófkjörið. Vel á annan tug þúsunda skila sér á kjörstað, víða er áhuginn brennandi. Þetta er að skila sér í mjög auknu fylgi. Flokkurinn hefur líklega ekki haldið jafn öflugt prófkjör síðan Albert og hulduherinn voru upp á sitt besta.

Vinstri flokkarnir þurfa aldeilis að taka sig á ef þeir ætla að koma í veg fyrir sigur Sjálfstæðisflokksins í vor. Deyfðin yfir þeim er niðurdrepandi. Þetta tekst varla með núverandi forystumönnum.

— — —

Ingibjörg Sólrún sendir Vinstri grænum sneið í grein í Morgunblaðinu í morgun, kennir þeim um að hafa sprengt R-listann. Það verður forvitnilegt að stúdera hvernig stjórnmálaöfl sem hafa starfað saman í tólf ár fara að því að bítast í kosningum – og skýra út í leiðinni af hverju þau vilja ekki starfa saman lengur. Það gætu orðið talsverðar flækjur. Ingibjörg Sólrún hvetur óflokksbundna til að flykkja sér í prófkjör hjá Samfylkingunni sem verður haldið í febrúar. Er hún að meina Dag Eggertsson?

Fyrst birt: 05. nóv. 2005 22:17

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Enn eru fornmenn á ferð