fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Eyjan

Íslamsvæðing og blóðlitaðar ár

Egill Helgason
Þriðjudaginn 15. nóvember 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Merkilegt hvað túlkanirnar á óeirðunum í Frakklandi og víðar í Evrópu eru margvíslegar. Sumir vilja meina að þarna séu á ferðinni ungir menn fullir af örvæntingu – þá þyrsti eftir félagslegu réttlæti. Þetta sé aðferð þeirra til að fá valdastéttina til að hlusta. Atvinnulausir, áreittir af lögreglunni, útskúfaðir úr samfélaginu, dæmdir til að búa í lélegu húsnæði – þeir eigi ekki annarra úrkosta völ til að vekja athygli á hlutskipti sínu.

Gary Younge skrifar í The Guardian og segir að engin bænaskjöl eða friðsamleg mótmæli hefðu getað áorkað þessu. Því segist hann styðja mótmælin – með þeim fyrirvara þó að það sé varla réttlætanlegt að kveikja í bílum. Þetta sé barátta fyrir réttlæti og hún sé að skila árangri.

Nú hafi ríkið þurft að friðmælast við mótmælendurna og gripið verði til aðgerða til að koma til móts við þá – auka atvinnutækifæri og bæta aðgengi að menntun. Valdið hafi vaknað upp við vondan draum – og orðið að gefa eftir. Þetta sé ekki ósvipað því sem gerðist í kynþáttaóeirðunum í Bandaríkjunum á sjöunda áratug síðustu aldar.

— — —

Í tímaritinu The Spectator kveður við annan tón. Undir aðalfyrirsögninni Eurabian Nightmare sér blaðið fram á íslamsvæðingu Evrópu. Það dregur upp mynd af miklum fjölda af múslimum sem séu ekkert sérlega áhugasamir um að aðlagast. Þetta sé spurning um vitlausa stefnu, uppgang trúarsetninga og demógrafíu.

Greinarhöfundar Spectator segja að Evrópa sé í djúpum vanda vegna innflytjenda, einkum múslima sem aðlagist illa. Þeir séu nú tíu prósent af íbúatölu Frakklands. Tala þeirra í sumum borgum sé þó miklu hærri – blaðið dregur upp mynd af sigðarlaga (sic!) svæði í kringum Norðursjó þar sem múslimar eru mjög fjölmennir, til dæmis í borgum eins og Rennes, Lille, Brussel, Antwerpen, Rotterdam, Bremen og Árósum. Þarna eru allt að tuttugu prósent íbúanna múslimar segir Spectator.

— — —

Blaðið segir að í tengslum við óeirðirnar hafi varla mátt nefna orðið sem byrjar á "m" – múslimi. En þar séu menn að berja höfðinu við steininn. Stór hluti íbúa hverfanna þar sem óeirðirnar geisuðu séu ungir og herskáir karlmenn, fullir af beiskju og mjög móttækilegir fyrir öfgafullum skoðunum. Það sé ekki víst að aðlögun – integration – höfði eitthvað sérstaklega til þeirra.

Þvert á móti séu teikn á lofti um að múslimar í Norður-Evrópu séu að verða ríki í ríkinu. Þeir helgi sér sín svæði, einangri sig; þess sé jafnvel ekki langt að bíða að reynt verði að koma á íslömskum sharialögum í hverfum þeirra. Í heildina tekið vilji múslimar í Frakklandi í raun minni aðlögun, ekki meiri aðlögun. Innan múslimasamfélagsins séu meira að segja raddir um að til verði sérstakt kalífadæmi í Evrópu – það sem kallað hefur verið Eurabia af þeim sem óttast það mest.

— — —

Kannski er þetta hreint ofsóknaræði, en það er allavega mikill samhljómur milli höfundanna fjögurra sem skrifa um þessi mál í Spectator – þetta fræga íhaldsblað. Það hlakkar bara mismikið í þeim; flestir eru þeir nefnilega stækir andstæðingar Evrópusambandsins – þeim er dillað þegar Evrópa á í vandræðum.

Hins verður því vart á móti mælt að fjölmenningarhyggjan í Evrópu er á síðasta snúningi. Mikil reiði greip um sig í Hollandi eftir morðið á kvikmyndagerðarmanninum Theo Van Gogh; þar voru moskur brenndar og nú eru þar uppi áætlanir um að banna burka, hinn ömurlega kvenbúning sem hylur múslimakonur. Andstaðan er líka að vaxa í Danmörku þar sem síðast varð mikið uppistand vegna múslimaklerka sem vildu fara að ritskoða efni í dagblöðum.

Einn pistlahöfundurinn, Taki, rifjar upp nafn breska þingmannsins Enochs Powell. 1968 flutti hann fræga ræðu sem kennd er við rivers of blood. Þar setti hann sig upp á móti straumi innflytjenda til Bretlands, sagði að þetta myndi enda með borgarastríði. Powell var útmálaður sem rasisti, Edward Heath rak hann strax daginn eftir úr skuggaráðuneyti sínu. Taki telur að nú muni hann bifast af kuldahlátri í gröf sinni.

— — —

Til fróðleiks:

Í ræðu sinni sem haldin var 20. apríl 1968 í Birmingham sagði Powell:

"It is like watching a nation busily engaged in heaping up its own funeral pyre…. As I look ahead, I am filled with foreboding. Like the Roman, I seem to see "the River Tiber foaming with much blood"."

Þetta er komið úr Eneasarkviðu eftir rómverska skáldið Virgil, hljómar þannig í þýðingu Hauks Hannessonar – spásögn völvunnar Sybillu:

"Ég sé stríð, skelfileg stríð og Tíberfljót freyða í miklu blóði."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“