fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Þrjótur úr Bond-mynd

Egill Helgason
Þriðjudaginn 24. janúar 2006 22:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rupert Murdoch er hrollvekjandi maður. Í raun ætti hann að leika illmennið í næstu James Bond mynd. Hún gæti þá endað með því að Bond lokaði óþverrablaðinu The Sun með tilheyrandi sprengingum og pomsarapomsi – tæki kannski Fox News með í leiðinni.

Murdoch var í viðtali um helgina og sagði að hann væri þvívegis búinn að hitta David Cameron, nýja leiðtoga breska Íhaldsins. Sér litist vel á Cameron en hann yrði að leggja meiri áherslu á skattalækkanir.

Murdoch er raunar bandarískur ríkisborgari, hefur ábyggilega ekki þjáðst mikið undir breska skattakerfinu, en fyrst og fremst er hann auðvitað alþjóðlegur eins og fjármagnið – og bófarnir í James Bond. Tony Blair hefur þurft að skríða fyrir Murdoch og fjölmiðlum hans sem terrorisera breska pólitík. Í Bandaríkjunum hafa fjölmiðlar hans dregið umræðuna niður í skítinn með forheimskandi patríótisma og stríðsáróðri.

Nú gefur Murdoch til kynna að hann kunni að snúa sér að Cameron. Það er skelfilegt ef stjórnmálamenn af hans kalíberi telja nauðsynlegt að hafa blessun slíks manns. Murdoch álítur líklega sjálfur að enginn geti komist til valda í Bretlandi nema að hafa blessun The Sun. Þetta er maður sem er hættulegur lýðræðinu – ekki síður en þrjótarnir í Bond.

— — —

Fólk sem ég hitti í dag var dálítið hissa yfir kaupum Dagsbrúnar á Securitas, brosti undirfurðulega. Það var gefið út að rekstur öryggisfyrirtækis og fjölmiðlafyrirtækis færi vel saman.

Verður Securitas notað i fréttaöflun var spurt? Ætla þeir nokkuð að koma sér upp leyniþjónustu?

— — —

Það virtist vera sérstakt metnaðarmál Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur meðan hún var formaður skipulagsnefndar að rífa Austurbæjarbíó. Þetta var skrítin hugmynd, byggðist á undarlegri neikvæðni og vantrú. Til að byggja upp líf í hverfi átti fyrst að rífa það sem setti þó eitthvað svipmót á umhverfið. Það er heldur ekki of mikið af samkomuhúsum í Reykjavík.

En nú er semsé búið að tryggja húsinu framhaldslíf; það eru einkaaðilar sem sjá sér hag í að endurreisa það sem menningarmiðstöð. Ætla eyða 200 milljónum í bíóið gamla og að fá fína útlenda arkítekta til að hanna það upp á nýtt.

Annars er uppbyggingin í Reykjavík rosaleg núna, það á til dæmis að fara að byggja í stórum stíl í kringum Hlemm – vonandi rís það leiða slömm úr öskunni. Ef einhvern tíma er tækifæri til að breyta bænum hlýtur það að vera í góðæri þegar fjármagn flæðir um allar gáttir og djarfir athafnamenn eru helsta stolt þjóðarinnar.

— — —

Fjölmiðlar nútímans ganga að miklu leyti út á að hræða – það er ekki síst gert í gegnum endalausan fréttaflutning af sjúkdómum og öðru sem ógnar heilsu okkar. Sjálfur hélt ég að ég myndi vera löngu dauður úr Aids; er ekki ennþá búinn að jafna mig á lækninum sem hló að mér eins og ég væri fáviti í hittifyrra þegar ég sagði við hann að ég hefði miklar áhyggjur af Habl – eða muna ekki allir eftir þeim sjúkdómi?

Kolbrún Bergþórsdóttir á frábæran sprett í pistli í Blaðinu í dag þar sem hún fjallar um alla þessa bölsýni:

"…þá kom fréttatími Stöðvar 2 þar sem fyrsta frétt var yfirvofandi heimsfaraldur vegna fuglaflensu. Ég heyrði ekki betur en að ég ætti að fara að hamstra mat og búa mig undir einangrun. Í bakgrunni fréttar var leikin dramatísk tónlist úr Schindler´s List. "Það hlaut að koma að endalokum," hugsaði ég og stillti á fréttir Ríkissjónvarpsins. Fyrsta frétt þar var sú að færi fram sem horfði yrði íslenska ekki töluð eftir hundrað ár. "Vitaskuld ekki, við verðum ekki lengur til," hugsaði ég dálítið súr yfir þeim örlögum að verða að deyja úr fuglaflensu."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra