fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Eyjan

Staðan í borginni – vaxtafár – skrítin króna

Egill Helgason
Sunnudaginn 2. apríl 2006 21:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athyglin í baráttunni fyrir borgarstjórnarkosningarnar beinist nú mjög að "litlu" flokkunum. Gengi þeirra í skoðanakönnunum er vægast sagt lélegt. Þeim mun fleiri atkvæði sem dreifast á þá og falla hugsanlega ónýtt, þeim mun færri atkvæði þarf Sjálfstæðisflokkurinn til að vinna borgina. Flokkurinn gæti jafnvel náð því markmiði með 46-47 prósenta fylgi ef atkvæði hinna flokkanna nýtast illa. Það er verkefni fyrir tölfræðinga að reikna það út.

Samfylkingin mun örugglega leggja mikla áherslu á þetta í kosningabaráttunni – að hætt sé við að atkvæði sem eru greidd Framsókn, Frjálslyndum eða VG falli dauð. Þetta mun fara óskaplega í taugarnar á flokkunum þremur – þeir munu svara með því að fólk eigi að fylgja sannfæringu sinni í kosningum. En það gæti vissulega stefnt í að klofningurinn á vinstri vængnum leiði Sjálfstæðismenn til valda í borginni – eins og í þá gömlu góðu daga þegar drottnuðu hér einir áratug eftir áratug í skjóli hinnar frægu glundroðakenningar.

— — —

Efnahagslífið verður æ skrítnara. Það er furðulegt að heyra menn fagna vaxtahækkun sem felur í sér að vextir eru orðnir ótrúlega miklu hærri en nokkurs staðar í veröldinni – getur maður ekki sagt bjánalega háir?

Steingrímur Hermannsson sagði eitt sinn að venjuleg hagfræðilögmál giltu ekki á Íslandi og það var hlegið hátt – svo undir tók árum saman. Nú bendir ýmislegt til þess að Steingrímur hafi haft á réttu á standa – altént heyrir maður óvæntustu menn nota svipuð orð um ástandið í efnahagsmálum eins og það er þessa dagana.

Flestir virðast til dæmis sammála um að ekkert sé að marka það sem útlendingar segja um íslenska hagkerfið. Þeir skilji einfaldlega ekki fyrirbærið.

Forsætisráðherrann segir fyrir hverja vaxtahækkun að nú sé engin ástæða til að hækka vextina – vaxtahækkun muni koma sér mjög á óvart – en gamli forsætisráðherrann hefur skipt um ham, er kominn í Seðlabankann, búinn að taka niður sólgleraugun sem hann bar árum saman á skopmyndum og er nú mjög þungt í sinni yfir stöðu efnahagsmálanna.

— — —

Helgi Hjörvar skrifar ágæta grein um efnahagslífið á vef sinn undir yfirskriftinni Einokunarverslun íslensku krónunnar.Þar vekur Helgi meðal annars máls á þeirri einkennilegu staðreynd að margir virðast vera upp með sér yfir athyglinni sem hinn furðulegi gjaldmiðill okkar hefur fengið í útlöndum. Helgi kallar krónuna "matador-mynt".

Hann segir ennfremur:

"Verðbólguskot, gengissveiflur og mikill vaxtamunur fela í sér skemmtileg tækifæri fyrir fjármálalífið. Þekki maður markaðinn og hafi greiðan aðgang að lánsfé er hægt að spila á þessa þætti einsog fíólín og raka til sín gróðanum. Þeir sem þá veislu þurfa að greiða eru notendur íslensku krónunnar, almenningur og venjulegt atvinnulíf. Þannig verður þetta gósenland spekúlanta sem græða á tá og fingri en almenningur greiðir hæstu vexti í heimi harðánægður með að halda í sína íslensku krónu. Svo tryggir krónan um leið bönkunum tæknihindranir við samkeppni erlendis frá og þeir geta á meðan sagt okkur áfram að þó þeir græði að vísu ofboðslega mikið þá sé það ekki á neinum!!!"

— — —

Financial Times, Sunday Times og Le Monde birta stórar greinar um vaxtahækkun á Íslandi. Er maður stoltur?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Gamalkunnur söngur bankanna ómar – þarf kannski bara að breyta leikreglunum?

Orðið á götunni: Gamalkunnur söngur bankanna ómar – þarf kannski bara að breyta leikreglunum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?