fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Eyjan

Húrra fyrir Dorrit

Egill Helgason
Laugardaginn 13. maí 2006 13:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klippari Blaðsins var að tuða yfir Dorrit. Að hún sé í þeirri stöðu að henni sé sæmst að þegja um alþjóðamál. Kannski er það rétt að einhverju leyti. Hún er gift forseta Íslands. En þess er líka að gæta Dorrit er sjálfstæð persóna, hún er ekki ennþá íslenskur ríkisborgari (sem er barasta ágætt hjá henni), hún hefur ekki verið kjörin í neitt embætti eða verið í framboði – og vegna upprunans er tæplega hægt að banna henni að hafa skoðanir á Ísrael.

Með leiðinlegri endurminningum sem ég á er að hafa lent í líkamsleit og yfirheyrslu á flugvelli í Ísrael. Þetta tók sirka þrjá tíma. Ég missti af flugvél. Ég fattaði aldrei hvað tilefnið var, kannski vissu þeir að ég hafði verið að ferðast á svæðum Palestínumanna. Tortryggni er skiljanleg í ríki sem á svo marga óvini, en hermennskuandinn sem einkennir Ísrael er mjög ógeðfelldur. Það er kannski lýðræðisríki – en það er alveg á mörkunum.

Í Ísrael ríkir mikil spenna milli ofsatrúarmanna sem gerast sífellt frekari – eru á góðri leið með að eyðileggja ríkið – og veraldlega þenkjandi fólks sem dreymir um að Ísrael geti verið eins og hvert annað vestrænt land. Margir Ísraelsmenn af síðarnefnda taginu hafa verið að forða sér burt undanfarinn áratug. Þetta er fólk sem hugsar eins og Dorrit. Hún talar máli þess þegar hún segir að Jerúsalem skuli vera alþjóðleg borg.

— — —

Hér er athyglisverð samantekt. Er stjórnmálaástandið svona slæmt í Bandaríkjunum? Jú, er það ekki. Þar situr óhæf ríkisstjórn sem æ fleiri snúa baki við, hálfpartinn lömuð vegna þess að ferill hennar hefur verið slíkt klúður. Verst að Bush á eftir að lafa í embætti í tvö og hálft árí viðbót. Þetta kusu Bandaríkjamenn yfir sig. Þá koma loks kosningar.

Maður getur vonað að þá verði Hillary Clinton í framboði á móti John McCain. Tveir afskaplega hæfir frambjóðendur. Guð forði okkur frá einhverri afturgöngu úr núverandi ríkisstjórn – eins og til dæmis Condolezza Rice.

— — —

Það væri eiginlega hægt að hafa sérstakan dálk hér á síðunni með óvæntu gríni úr Morgunblaðinu. Ég nefndi um daginn hina kátlegu umfjöllun um Kastljósið og Baug- hér er eitt til.Stöðugar vangaveltur Styrmis um með hverjum Sjálfstæðisflokkurinn skuli vinna eftir kosningarnar – hin eina rétta partner:

"Margt bendir til að meiri og meiri samstaða sé að verða á milli sjálfstæðismanna og Vinstri grænna. Samstarf á milli Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra liggur beint við enda grundvallarsjónarmið þessara tveggja flokka áþekk. Og ekki er hægt að útiloka samstarf við Framsóknarflokkinn í borgarstjórn nái flokkurinn á annað borð manni í borgarstjórn."

Vinstri grænir…nei Frjálslyndir…nei annars Framsókn… -en skyldu VG-arar skrifa undir að grundvallarsjónarmið flokkanna séu áþekk?

— — —

Er brandarinn um Sylvíu Nótt að súrna? Það er eins og þetta sé hætt að vera fyndið – sé bara agressívt. Eitt af því sem ég nenni ekki að gera í Grikklandi í sumar er að svara fyrir Sylvíu Nótt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“