fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Eyjan

Að móðga smáþjóðir

Egill Helgason
Föstudaginn 19. maí 2006 11:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru fleiri smáþjóðir viðkvæmar en Grikkir – þeir skynja sig nefnilega sem feikn merkilega smáþjóð, rétt eins og Íslendingar. Það varð til dæmis uppi fótur og fit nú eftir jólin þegar Quentin Tarantino kom í viðtal í bandarísku sjónvarpi og lýsti því hvað íslenskar konur eru miklar druslur. Tarantino varð samstundis óvinur Íslands og er trauðla væntanlegur hingað aftur. Hann er allavega ekki aufúsugestur.

Sömu sögu er að segja af Jerry Seinfeld. Hann kom hingað, var dónalegur við Hauk Holm og ætlaði að taka Jón Ársæl og Loga Bergmann með afturhurðinni. Hann er ekki hátt skrifaður á Íslandi.

Ekki heldur Robbie Williams sem var fullur af hroka þegar hann kom hingað og hélt tónleika. Sleit þeim snögglega þegar hann sagði að kókflösku hefði verið hent í sig. Fullyrti að hún hefði verið úr gleri, en allir sáu að þetta var bara plast.

Þá má ekki gleyma Bob Dylan sem var svo áhugalítill um Ísland að hann fór aldrei út af hótelherbergi sínu. Það fannst Íslendingum verulega móðgandi. Þeir hafa hins vegar ekki tekið eftir því að í lagi sem heitir Destiny sem kom út nokkrum árum síðar syngur Dylan um "land miðnætursólarinnar". Sem hann sá þó bara út um hótelglugga.

Það eru fleiri dæmi um svona. Jerry Lee Lewis sagði "you can kiss my ass" við Ómar Valdimarsson fréttamann,en Ian Gillan braut gólfið í Laugardalshöllinni þegar rafmagnið fór af á miðjum tónleikum Deep Purple. Robert de Niro kom hingað og hafði aðallega áhuga á hvar væri hægt að finna vændiskonur.

— — —

Þessi upptalning getur verið enn lengi. Ég sló orðunum "móðga" og "Íslendingar" upp á vefnum og fékk meðal annars þessa niðurstöðu, úr þingræðu Einars Odds Kristjánssonar:

"Herra forseti. Þó að margt sé kannski umhendis og mætti vera betra, þá held ég að ég geti örugglega huggað hv. þm. með því að óravegur er frá okkar litlu vandamálum í gúlagið til þeirra glæpona sem þar voru í 70 ár. Ég minnist þess að þegar ég var ungur maður kom hingað í heimsókn maður sem hét U Thant og var framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og honum tókst á tveim klukkutímum að móðga alla Íslendinga. Því þegar aumingja maðurinn kom út úr flugvélinni, þá sagði hann: ,,Loksins, loksins er ég kominn til þjóðar sem hefur ekkert vandamál."

— — —

Evrópa kunni ekki að meta Silvíu Nótt. Samt var þetta ágætis performans hjá henni. Það er ljótt að eyðileggja Evróvisjónpartíin fyrir smáþjóðinni annað árið í röð. Hvað eiga Íslendingar að gera við allt snakkið og bjórinn á morgun?

— — —

Annars hefðu Björgólfarnir getað reddað þessu öllu – það er ekki fráleitt að kenna þeim um tap Silvíu. Þeir eiga símafyrirtæki um alla Austur-Evrópu og hefði verið í lófa lagið að láta senda nokkur milljón sms-skeyti til að koma þessari þjóðargersemi okkar áfram í keppninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum