fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Eyjan

Af bolsum og rónum

Egill Helgason
Föstudaginn 6. október 2006 19:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Var Staksteinapistillinn um herstöðvaandstæðinga sem taglhnýtinga Stalíns ekki dálítið gaga? Það fraus í kaffibollanum hjá manni við að lesa þennan uppvakning úr Kalda stríðinu. Sumir herstöðvaandstæðingar voru vísast kommúnistar, og kannski tókst kommúnistum að manípúlera einhverja nytsama sakleysingja – en hjá mörgum snerist þetta aðeins um nýfengið frelsi þjóðar sem þeim fannst spillt með veru erlends hers á íslenskri grund.

Mogginn kallaði Sigurbjörn Einarsson "smurðan Moskvuagent", en það var hann auðvitað ekki. Líklega var stór hluti af herstöðvaandstæðinga þjóðernissinnar – réttir og sléttir framsóknarmenn ofan úr sveit fremur en blóðrauðir bolsar.

Franski sósíalistaforinginn Leon Blum orðaði það svo að kommúnistar hefðu verið patríótar – en bara í öðru landi en sínu eigin. Það er sérstakt að fylgjast með ritdeilu Kjartans Ólafssonar og Þórs Whitehead sem nú eru fjarska móðgaðir hvor út í annan. Manni finnst varla ástæða til að gera sérlega mikið úr vopnaburði íslenskra kommúnista, um hann eru afar litlar heimildir, en hinu má þó ekki gleyma að kommúnistar höfðu á stefnuskrá sinni að bylta þjóðskipulaginu með vopnavaldi ef því væri að skipta.

Menn gátu varla annað en tekið mark á því.

Annars var alltaf uppi orðrómur um eitthvert leyniþjónustubrölt innan íslensku lögreglunnar. En leyndarmálið virðist hafa verið fjarska vel varðveitt. Árni Sigurjónsson, hinn dularfulli maður sem stýrði þessari starfsemi, dó áður en hann gat leyst frá skjóðunni – sem mér skilst reyndar að hann hafi verið tilbúinn að gera undir andlátið.

— — —

Ég hef stundum skrifað um rónana í bænum. Þetta er merkileg hjörð þar sem hún tínist niður í kvos á morgnana, druslast og drattast, skjálfandi og illa til reika, en er yfirleitt á bak og burt þegar húmar að kvöldi. Þá eru kraftarnir kannski á þrotum þar til nýr dagur rennur. Nema allir séu komnir inn á einhverja huggulega krá.

Sjaldan hafa rónarnir – og dópistarnir – verið jafn áberandi og núna í haust. Ég spyr mig hvort þessi stétt manna sé svona afskaplega fjölmenn á Íslandi, en kannski er skýringin fremur sú að það er svo fátt af öðru fólki í bænum. Í erlendum borgum hverfa rónarnir í mannfjöldann, en hérna er enginn mannfjöldi að hverfa í. Og þar af leiðandi eiga þeir bæinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“