fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Eyjan

Pamuk, skáld Borgarinnar

Egill Helgason
Fimmtudaginn 11. janúar 2007 19:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í sumar sagði ég við vinkonu mína í Istanbul að Ohran Pamuk myndi fá Nóbelsverðlaunin, það kom mér heldur ekki á óvart að það skyldi gerast svo fljótt – strax síðasta haust. Kannski er Pamuk merkilegasti rithöfundur í heimi um þessar mundir, ekki bara vegna þess að hann sé svona góður, heldur líka vegna þess að hann situr þvert á aðalátakalínu heimsins, milli austurs og vesturs. Viðfangsefni hans eru stór og skipta máli.

Tyrkland togast á milli hins vestræna heims með neyslu sinni og velmegun og austursins með trúarhita sínum og dulhyggju. Hin opinbera heimspeki er veraldarhyggja sem er varinn af slíkri hörku að bannað er að fjalla um sögu landsins nema á ákveðinn hátt; það má ekki móðga Ataturk, föður þjóðarinnar, ekki segja frá fjöldamorðum og þjóðernishreinsunum sem tilurð þjóðarinnar byggir að vissu leyti á. Samt er íslam alls staðar, í körlunum sem lauga sig við moskurnar, konunum með höfuðklútana, úti um sveitir þessa stóra ríkis. Evrópusambandið getur samt ekki hummað Tyrkland fram af sér – staða þess í heiminum er alltof stórt mál.

Ég ætla að nefna tvær bækur eftir Pamuk. Annars vegar Snjór sem fjallar um hvernigþjóðernishyggja, róttækt íslam, aðdáun en um leið minnimáttarkennd gagnvart vestrinu, minningar um þjóðarmorð, frelsisbaraátta Kúrda, birtast í hópi fólks sem er fast í snjóbyl niðurníddri borgí austur Tyrklandi. Úr þessu og margvíslegum persónulegum harmi vefur Pamuk einkennilegan vef – nánast eins og teppi úr snjó.

Svo er það bókin Istanbul, sem fjallar um Borgina eins og hún er einfaldlega kölluð á þessum slóðum, æskuminningar úr borg sem er með höfuðið vestri en sálina í austri, trega eftir glæstri fortíð sem er alls staðar sýnileg í rústum og hálfhrundum byggingum – hnignun sem er bæði döpur og undursamleg. Istanbul hefur verið höfuðborg þriggja heimsvelda sem öll eru horfin í svelg sögunnar. Það er kannski ekki skrítið að skáld þessarar borgar skuli vera heilluð af hnignuninni, óhjákvæmileika þess að glata sem virkar eiginlega sætbeiskur hjá Pamuk.

Lesið hann. Þýðingar á verkum hans hljóta að vera á leiðinni.

Myndin sem birtist hér með er úr bókinni Istanbul og er eftir einn fremsta ljósmyndara allra tíma sem heitir Ara Güler og hefur verið kallaður auga borgarinnar við Bosporus, sérstaklega hverfisins sem nefnist Beyoglu. Skoðið fleiri myndir eftir hann hér og hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða