fbpx
Þriðjudagur 19.ágúst 2025
Eyjan

Fundur í Stykkishólmi, zero Framsókn, mávadráp

Egill Helgason
Miðvikudaginn 28. mars 2007 16:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er kominn í Stykkishólm, í glampandi sól en frekar köldu veðri, sit hér í matsal hótelsins og horfi yfir Breiðafjörð. Myndin hérna sýnir útsýnið út um gluggann. Við erum með kosningafund um kvöldmatarleytið á vegum Stöðvar 2. Þetta er fyrsti fundurinn í hringferð okkar um landið – næsta miðvikudag verðum við á Akureyri.

Þátturinn á eftir verður kannski ekki síst eftirminnilegur fyrir hvað hlutur kvenna er lélegur í Norðvesturkjördæmi. Merkilegt í kosningum sem virðast að miklu leyti ætla að snúast um kvennafylgið. Engin kona skipar fyrsta sæti framboðslista í kjördæminu – þó er hugsanlegt að Íslandshreyfingin geti bætt þar úr. Annars eru í fyrstu sætum Sturla, Magnús Stefánsson, Jón Bjarnason, Guðjón Arnar og svo nýliðinn Guðbjartur Hannesson.

Einu konurnar sem eiga einhverja möguleika á þingsæti í kjördæminu eru Herdís Sæmundardóttir úr Framsóknarflokki og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir úr VG.

Við birtum skoðanakönnun um fylgi flokkanna í útsendingunni á eftir svo það verður spennandi að sjá.

— — —

Af hverju ekki ríkisstjórn með zero Framsókn? er nýjasta kosningaslagorð ungliða í VG. Þýðir þetta að þau vilja frekar starfa með Sjálfstæðisflokknum? Hví skynjar maður þessa spennu hjá VG fyrir samstarfi við íhaldið? Ber Sjálfstæðisflokkurinn ekki ábyrgð á stóriðjustefnunni til jafns við Framsókn? Er það ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur knúið áfram einkavæðinguna? Voru það ekki Sjálfstæðismenn sem breyttu Ríkisútvarpinu í ohf? Studdu innrásina í Írak?

Það er líka vel hugsanlegt að unga fólkið í VG þurfi að éta ofan í sig stóru orðin. Sá möguleiki gæti hæglega komið upp að ekki verði hægt að mynda ríkisstjórn til vinstri nema með Framsóknarflokknum. Þá verður ekki zero Framsókn.

— — —

Aldrei má gera neitt á Íslandi án þessa að einhver fari að rövla. Nú koma alls konar spekingar og mótmæla því að sílamávnum á Reykjavíkurtjörn verði útrýmt. Við sem búum nálægt Tjörninni vitum að vegna hans hefur andarungi varla komist á legg á Tjörninni í fjölda ára. Kríuvarpið hefur líka misfarist algjörlega.

Sóley Tómasdóttir, sem situr í umhverfisráði borgarinnar, segir í viðtali við eitt dagblaðanna að nær sé að auka hreinlætisvitund borgaranna sem aftur myndi minnka æti mávsins.

Vandinn er bara sá að mávurinn fór að vera vandamál að eftir að gert var átak í hreinsun strandlengjunna í Reykjavík. Þá var ekkert ætilegt lengur fyrir hann að hafa út með ströndinni. Svo mávagerið fór að leita inn í borgina þar sem urðu fyrir sætir og varnarlausir andarungar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?