fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Eyjan

Þráinn: Leifarnar af búi Stórólfs

Egill Helgason
Fimmtudaginn 31. desember 2009 00:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér er ræða Þráins Bertelssonar þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu í þingsal í kvöld:

— — —

„Í hreppsnefnd í afskekktri sveit norður við ysta haf urðu langar umræður um að eitthvað þyrfti að aðhafast vegna bújarðar sem hafði verið yfirgefin haustið áður og var viðskilnaðurinn slæmur. Það var mikið talað en lítið aðhafst.

Þessi jörð hafði verið í eigu hreppsins og notuð sem upprekstrarland fjár í almannaeigu uns nýr og atkvæðamikill hreppstjóri komst til valda í hreppsnefndinni og vildi selja eigur hreppsfélagsins, þar á meðal þessa jörð sem hentaði vel til fjárbúskapar.

Hreppstjórinn hafði sitt fram í þessu sem öðru og kaupandinn var sérvalinn úr vinahópi hreppstjórans. Hann hét Stórólfur. Nokkur kurr kom upp þegar það spurðist út að ætlunin væri að selja Stórólfi jörðina því að búskaparhættir hans voru umdeildir og hann hafði áður verið dreginn fyrir dóm fyrir óhefðbundna meðferð sína á fé og sérkennilega afstöðu sinna til búreikninga.

Hreppstjórinn og fylgismenn hans höfðu sitt fram og Stórólfur tók við búinu og gerði einkavin hreppstjórans að ráðsmanni sínum – en láðist með öllu að greiða það lága verð sem upp var sett fyrir jörðina.

Líður svo fram um hríð og verður mönnum tíðrætt um ríkidæmi Stórólfs sem barst mjög á og skorti aldrei skotsilfur, enda gat hann sótt lausafé að vild í skiptum fyrir ástarbréf til hreppstjórans sem hafði flutt sig um set og var nú orðinn sparisjóðsstjóri sveitarinnar.

Nú harðnar í ári og menn hafa á því orð að ekki séu lengur tvö höfuð á hverri skepnu á búi Stórólfs, en það sem verra er að nú fara að berast kvartanir úr öðrum sýslum yfir því að fé Stórólfs sé haldið þar til beitar í leyfisleysi og húskarlar hans taki í sína umsjá sauðfjáreign bændafólks í fjarlægum byggðarlögum og setji engar tryggingar fyrir því að þeir geti skilað fénu til baka loðnu og lembdu.

Til að gera langa sögu stutta brestur nú á með harðan vetur og fjárfelli sem kemur harðast niður á þeim bændum sem höfðu trúað því að með mikilli stóriðju og tilheyrandi heimshlýnun hefðu búskaparhættir á Íslandi gjörbreyst til hins betra og fé gæti gengið sjálfala allan ársins hring og þyrfti ekki aðra umhirðu en rúningu og slátrun.

Milli jóla og nýárs þagnar loksins hreppsnefndin málglaða og tekst ferð á hendur að kanna viðskilnað Stórólfs. Það er áliðið kvölds þegar nefndarmenn paufast heim að bænum við daufa týru frá þrettánda tungli þessa óhappaárs.

Þegar þeir koma heim að bæjarhúsunum rekur sá sem fyrstur gengur upp skaðræðisóp því að út úr myrkrinu kemur flyksa og vefur hann ísköldum örmum. Á bæjarhlaðinu er háð tvísýn glíma og angistaróp bergmála í klettum út yfir hjarnbreiðuna.

Hluti hreppsnefndarmanna telur þann kost vænstan að leggja hæla á bak og flýja undan draugnum. Þeir skunda til byggða og segja þar móðir og másandi frá því að magnaður draugur gangi nú ljósum logum í sveitinni og muni engu eira og eyða allri byggð.

Fólk sem heyrir þessar tröllasögur verður felmtri slegið og uggandi um framtíðina þegar sveitin sér forystumenn sína og trúnaðarmenn froðufella af æsingi og skjálfa á beinunum af ótta.

Þá víkur sögu aftur heim á hlað. Nýi hreppstjórinn og oddvitinn ákveða að reyna að koma til bjargar. Eftir harðan atgang kemur í ljós að draugur sá sem hefur vafið örmum sínum að hálsi hreppsnefndarmannsins er engin afturganga heldur er þarna á ferðinni svonefnt föðurland, ullarnærbuxur síðar sem Stórólfur bóndi hefur skilið eftir hangandi á snúru og hafa nú fokið og skálmarnar vafist að hálsi hreppsnefndarmannsins sem er viti sínu fjær af ótta og alls ekki viðmælandi.

Við skulum skiljast hér við þessa þjóðsögu sem við öll þekkjum í einni eða annarri mynd úr þúsund ára sögu okkar. Fyrst er þó ekki úr vegi að draga einhvern lærdóm af sögunni.

Til dæmis að maður á ekki að selja einkavinum sínum eignir almennings. Og maður á að vera vandur að vinum.

Til dæmis að nýjar hreppsnefndir geta ekki kjaftað sig frá því að takast á við vandamál úr fortíðinni – jafnvel þótt þær eigi ekki sök á þeim vanda.

Og til dæmis að hreppsnefndir eiga að leysa erfiðleika en ekki magna þá upp og allrasíst að hræða saklaust fólk með því að breyta skítugum nærbuxum eftir uppflosnaðan búskussa í mannskæðan draug.

Hvað svo sem líður sagnahefð okkar Íslendinga þá er kominn tími til að slá botn í þetta Icesave-mál – að sinni – og ganga óttalaus að því að slá marglofaðri skjaldborg um fjölskyldur og heimili. Nú er endurreisn efnahagslífsins komin af stað með tilheyrandi tugmilljarða afskriftum á skuldum banka og fjármálafyrirtækja. Nú er röðin komin að íbúum þessa lands, fólki af holdi og blóði, og tímabært að afskrifa eitthvað af þeirri skuldabyrði sem er að sliga almenning í landinu.

Kannski er eðlilegt að samviskubit vegna fortíðar brjótist fram í ótta við framtíðina – framtíð sem kemur hvort sem við óttumst hana eða ekki. Ef við höfum gæfu til að mæta framtíðinni af kjarki og heiðarleika verður þjóð okkar langlíf í landinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun – Ísland og Evrópusambandið

Könnun – Ísland og Evrópusambandið