fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Eyjan

Jólapopp – og djass

Egill Helgason
Miðvikudaginn 23. desember 2009 07:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég ætla að lauma hérna inn tveimur poppuðum jólalögum sem mér finnst frábær. Aðallega til að efla jólaskapið – og svo er aukabónus að ergja þá sem verða mjög fúlir ef maður setur inn eina og eina færslu sem ekki fjallar um Icesave.

Hér er George Michael með Last Christmas. Sérlega flott jólalegt bít í þessu lagi. Og Michael er frábær söngvari. Ég ætla ekki að skammast mín fyrir að finnast þetta ferlega skemmtilegt. Kemur mér í jólaskap, ef það er ekki spilað alltof snemma á árinu.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=3354flS1KJs]

Og svo er hérna stórgóður flutningur Pálma Gunnarssonar á lagi eftir Magnús Eiríksson, Gleði- og friðarjól. Í þessu lagi er að finna þennan galdur sem gerir Mannakorn að svo frábærri sveit hjá Magnúsi og Pálma, einhver innileiki og hlýja. Myndirnar við þessa YouTube útgáfu eru dálítið  út úr kú, en ég fann ekki annað.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=bIHw2eYq6o0]

Svo er ég reyndar haldinn þeim misskilningi að Kind of Blue eftir Miles Davis sé jólaplata. Kannski af því hún er svona cool? Dreg hana alltaf fram á aðfangadag og spila, sérstaklega þennan ópus. Flamenco Sketches. Það eru John Coltrane og Cannonball Adderley sem leika á saxafónana, en ekki ómerkari maður en Bill Evans samdi lagið með Miles. Sá sem klippti saman þetta myndskeið setur lagið líka inn í vetrarumhverfi.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=4KJE3a0pR2w]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina