
Útlendingar furða sig á bönkunum á Íslandi, samanber þessa grein sem birtist á vef breska hægriblaðsins Daily Telegraph. Hún fjallar um nokkrar persónur og leikendur í bankahruninu – bönkunum er líkt við úldnandi lík.
Varaformanni stjórnar Landsbankans var mikið niðri fyrir vegna hryðjuverkalaganna svokölluðu sem bresk stjórnvöld settu á íslensku bankana í október í grein í Mogganum fyrr í vikunni.
Enn vitum við alltof lítið um þann gjörning. Nema hvað ljóst er að íslensku bankarnir störfuðu ekki eins og venjulegar bankastofnanir; Jón Baldvin líkir þeim við skuldapíramíða í anda Ponzis.
Telegraph spyr hvaða ljótu leyndarmál bíði þess að verða afhjúpuð um þessa banka. Kannski fáum við þá að vita hvers vegna Bretar beittu þessari löggjöf gegn Landsbanka og Kaupþingi.
Í því sambandi gæti verið mikilvægt að Serious Fraud Office í Bretlandi ætlar að taka þátt í rannsókninni.