
Um daginn skrifaði ég um sjoppuvæðingu fyrirtækisins N1 við þjóðvegi landsins. Margir höfðu samband við mig og lýstu sig sammála því hvílík ómenning þetta væri.
Ég vék líka að því að N1 neytti aflsmunar til að taka yfir rekstur smurstöðva og bílaverkstæða – væru mjög illa þokkaðir í bílabransanum vegna yfirgangsins.
Um þetta má einmitt lesa í þessari frétt á Vísi. Það er ljóst að þetta er fyrirtæki sem beitir viðskiptaaðferðum góðærisins – á tíma þegar þær ættu að vera endanlega dottnar úr tísku.