
Pressan greinir frá því að félagarnir Tryggvi Þór Herbertsson og Frederic Mishkin séu saman á hreindýraveiðum á Íslandi.
Mishkin skrifaði undir fræga skýrslu þar sem efnahagslífið íslenska var lofað og prísað. Þessari skýrslu var mikið flaggað sem sönnun þess að hér væri allt í sómanum. Sagan segir að Viðskiptaráð hafi greitt Mishkin 135 þúsund dollara fyrir skýrsluna.
Því hefur verið haldið fram að þessi skýrsla hafi átt mikinn þátt í því að yfirvöld hér flutu sofandi að feigðarósi. Heimsfrægur hagfræðingur hafði gefið okkur gæðastimpil.
Nú ber vel í veiði.
Það þyrfti að sækja Mishkin austur á land, setja hann fyrir rannsóknarnefnd þingsins og láta hann skýra frá því hvað vakti fyrir honum þegar hann samdi þessa skýrslu.
Hvort honum skjöplaðist bara svona illilega – eða hvort hann lét bara kaupa sig?