
Margt bendir til þess að Ísland hafi verið gjörsamlega stjórnlaust síðustu árin.
Við einkavæðingu bankana fórum við út á braut sem leiddi til algjörs glundroða.
Öðruvísi er varla hægt að skýra út það sem yfir þjóðina hefur gengið.
Viðsnúningurinn í ríkisrekstrinum er ótrúlegur; halli á hrunsárinu 2008 er upp á 216 milljarða, 46 prósent af tekjum ríkissjóðs.
Maður sem ég talaði við um daginn líkti Íslandi við það sem á ensku kallast failed state.
Það eru stór orð, en í því leynist samt sannleikskorn.
Eða hvernig er samskiptum Íslands við umheiminn háttað þessa dagana?