
Það er langt þangað til Íslendingar fara í nýtt bankaævintýri. Líklega á starfsfólki í bönkum eftir að fækka talsvert frá því sem nú er – kannski nær landið líka einhvern tíma að tengjast betur erlendum bankastofnunum? Það er óskandi.
Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er fjallað um framtíðarregluverk fjármálakerfisins, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra nefnir nokkur atriði sem þarf að skoða sérstaklega í því sambandi:
Lánveitingar til tengdra aðila, ekki síst eigenda fjármálafyrirtækja.
Lán sem eru veitt engöngu gegn veði í hlutabréfum.
Kaupréttir og bónusar sem geta leitt til of mikillar áhættu.
Lán í erlendri mynt til innlendra aðila sem hafa hvorki tekjur né eignir í erlendri mynt.
Í greininni bætir Steingrímur J. Sigfússon svo við nauðsyn á gegnsæi, og aðskilnaði fjárfestingarbanka frá viðskiptabönkum.
Dæmin sanna að reglurnar hér á Íslandi þurfa að vera grjóharðar og eftirfylgnin líka. Í gær kom í ljós að Landsbankinn hafði lánað Björgólfi Thor Björgólfssyni 43 milljarða króna og stjórn bankans réttlætt það með því að hann væri ekki tengdur bankanum!
Í gær birti ég líka ákvörðun Fjármálaeftirlits vegna kaupa Samsonar á Landsbankanum frá árinu 2003. Ekki verður betur séð en að mörg atriði í sem þar komu fram hafi verið þverbrotin. Líklega var þetta plagg bara málamyndagjörningur, engum datt í hug að taka mark á því.
Í þessu landi þar sem klíkur eru allsráðandi þarf líka að beita öllum tiltækum ráðum til að koma í veg fyrir krosseignarhald. Það þarf öflugt fjármálaeftirlit, sem gefur ekki bara út álit heldur fylgir málum eftir af festu. Og sökum þess að fjármagnið er alþjóðlegt þarf að hafa alvöru samstarf við fjármálaeftirlit annarra þjóða.
Reyndar má nefna í því sambandi að innan Evrópusambandsins eru uppi tillögur um samevrópskt fjármálaeftirlit og hertar reglur um fjármálastarfsemi. Frakkar hafa verið ákafir talsmenn þessa.
Þeir sem standa hvað mest á móti eru Bretar með sinn fjármálamarkað sem hefur ýmis einkenni skattaskjóla – enda er London full af illa fengnu fé frá Rússlandi, Arabalöndum, jú, og kannski Íslandi líka.