fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Obama og sjúkratryggingarnar

Egill Helgason
Þriðjudaginn 28. júlí 2009 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 ob-cs084_obama1_g_20081120182216.jpg

Í flestum löndum Evrópu ríkir samstaða um að það sé best fyrir samfélagið að allir njóti heilsugæslu, burtséð frá efnahag.

Maður sér ekki hægri flokka sem eru á móti þessu. Ekki Sjálfstæðisflokkinn á Íslandi, og ekki Íhaldsflokkinn í Bretlandi. Hann vill verja NHS, breska heilbrigðiskerfið, sem á sínum tíma var stofnað af Verkamannaflokknum.

Í Bandaríkjunum er þessu öfugt farið. Þar eru ofstækisfullir hægri menn og leiguþý stórfyrirtækja sem vilja fyrir alla muni koma í veg fyrir að fátækt fólk fái læknisþjónustu eins og það þarf.

Það er sagt að í Bandaríkjunum séu 50 milljónir manna sem njóta ekki sjúkratrygginga. Það þýðir að aðgangur þeirra að læknisþjónustu er mjög takmarkaður. Mikill fjöldi fólks lendir í því að veikjast og þar með er kippt undan því fótunum; það er eins og það falli niður um dimma holu í samfélaginu. Fólk sem missir vinnuna getur lent í þessu sama; að standa uppi án trygginga.

Frá evrópskum sjónarhóli er þetta óskiljanleg harðneskja. Og líka frá sjónarhóli Kanadamanna sem búa norðan við landamærin.

Nú er Obama forseti að reyna að koma á lögum sem breyta þessu, lögum um almennar sjúkratryggingar.

En þá ber svo við að þingmenn berjast gegn þessu með kjafti og klóm. Flestir eru úr hinum einkennilega flokki Repúblikana sem ávallt telur sér skylt að gæta hagsmuna hinna ríku á kostnað fátæks fólk. Þar eru líka menn sem telja það beinlínis guðlegan vilja að sumir séu fæddir til ríkidæmis og allsnægta, en aðrir til örbirgðar.

En andstöðuna má líka finna í flokki forsetans sjálfs, Demókrataflokknum. Þrýstingurinn frá sérhagsmunahópum sem eiga hagsmuna að gæta að kerfið breytist ekki er ógurlegur – og þeir eiga líka nægt fjármagn til að vinna vondum málstað sínum fylgi.

Því er borið við að þetta sé of kostnaðarsamt. Það eru léleg rök í landi þar sem endalaust er verið að veita ríku fólki skattaívilnanir – fyrir utan að bandaríska heilbrigðiskerfið er nú þegar hið dýrasta og óhagkvæmasta í heiminum.

Það væri meiriháttar harmleikur ef lög um almennar heilsutryggingar næðu ekki fram að ganga – sumir halda því jafnvel fram að það yrði eins og rothögg fyrir forsetaferil Obamas og vonirnar sem hann hefur vakið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni