fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Norræna stjórnin?

Egill Helgason
Þriðjudaginn 28. apríl 2009 16:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ímyndarsmiðir Vinstri grænna og Samfylkingarinnar völdu Norræna húsið sem fundarstað fyrir stjórnarmyndunarviðræður.

Þetta er auðvitað ekki tilviljun.

Steingrímur J. hefur talað um að hann vilji mynda „norræna velferðarstjórn“.

Kannski er þetta tilraun til að stjórnin fái nafnið „Norræna stjórnin“ eða eitthvað í þá veru.

Svona líkt og við höfum áður þekkt Viðeyjarstjórnina og Þingvallastjórnina.

Tvennt er þó við þetta að athuga:

Öll Norðurlöndin sem vísað er til eru aðilar að Evrópusambandinu, utan eitt, Noregur.

Aðaástæðan fyrir því er olíugróðinn; Norðmenn pumpa upp svo mikilli olíu að þeir sjá enga þörf á ESB aðild.

Og svo er hitt að það voru sósíaldemókratar sem byggðu upp norræna velferðarkerfið – ekki flokkar til vinstri við þá, sósíalistar eða kommúnistar.

Í kvöld sýnir Kvikmyndasafn Íslands myndina Aadalen 31 eftir Bo Widerberg. Hún fjallar um söguleg verkfallsátök í Svíþjóð árið 1931.

Í verkfallinu í Aadalen voru fimm verkamenn drepnir af hermönnum. Þetta vakti mikla reiði, það blasti við að atvinnurekendur og ríkisstjórnin í hinni fjarskalega íhaldssömu Svíþjóð höfðu gengið of langt.

Ári seinna komust sósíaldemókratar til valda í landinu og hófu uppbyggingu hins norræna velferðarkerfis. Það varð lýsandi fyrirmynd þegar veröldin logaði í ófriði og öfgastefnur tókust á. Kratarnir voru við völd áratugum saman.

Seinna komu í ljós ýmsar brotalamir á velferðarkerfinu – en það er önnur saga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“