
Samkvæmt heimildum mínum er vilji fyrir því bæði innan Samfylkingarinnar og Vinstri grænna að Framsóknarflokkurinn verði með í ríkisstjórn.
Í tengslum við Evrópusambandsumræðuna hefur tekið um sig gamalt óþol milli þessara flokka – sem teygir sig reyndar langt aftur í söguna, frá þeim tíma þegar kratar og kommar hötuðust.
Vinstri græn treysta Samfylkingunni illa, finnst hún upptekin af spunamennsku, og margir samfylkingarmenn álíta að innan raða Vinstri grænna séu afdalapólitíkusar sem ekki sé hægt að púkka upp á.
Þá er spurning hvort þingmeirihluti flokkanna sé einfaldlega ekki of naumur fyrir þau stóru og erfiðu verkefni sem eru framundan.
Því eru uppi hugmyndir um að kalla Framsókn til leiks – og hún mun líklega taka boðinu. Sigmundur Davíð yrði þá ráðherra og líklega einhver annar úr röðum flokksins.