
Jóhanna telur að ekkert liggi á að mynda nýja ríkisstjórn, telur ekki þurfa nein „tímamörk“ í viðræðunum.
Það er skrítið viðhorf meðan fyrirtæki fara unnvörpum á hausinn, húsnæðisverð hrapar, atvinnuleysið eykst, erlendir kröfuhafar knýja á, bankar eru ekki með efnahagsreikninga, vextirnir eru ofurháir, eignir brenna upp, gjaldmiðillinn hrynur þrátt fyrir ströng gjaldeyrishöft en skuldastaða þjóðarinnar er ráðgáta.
Staðreyndin er samt sú að þótt sitji ríkisstjórn í landinu gerir hún ekki mikið meðan standa yfir stjórnarmyndunarviðræður í Norræna húsinu (er það táknrænn fundarstaður, Norræna húsið = norræn velferðarstjórn).
Stjórn þeirra Jóhönnu og Steingríms – minnihlutastjórnin – hefur komið litlu sem engu í verk. Hún var biðstjórn. Nú hefur hún þingmeirihluta en það er ósamið um málin.
En þjóðin hefur ekki efni á að bíða.