
Ragnar Arnalds heldur því fram að fjölmiðlar hafi verið misnotaðir – það er voða þægilegt að ráðast á fjölmiðlana þegar stjórnmálaflokkarnir standa frammi fyrir vanda sem þeir eiga erfitt með að leysa.
Ragnar hefur haft sig mikið frammi í ESB málum. Eða réttar sagt – hann má ekki heyra á ESB minnst. Ekki fremur en Nató, EFTA og EES á sinni tíð.
En Ragnar er einn af helstu arkitektum hins óbjörgulega efnahagslífs á Íslandi. Þar ber hann mikla ábyrgð. Og við höfum öll þurft að súpa seyðið af því.
Hann sat í tveimur af verstu ríkisstjórnum Íslandssögunnar.
Stjórn Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks sem starfaði stutt, í stöðugum ófriði, og sprakk með hvelli árin 1978-1979.
Stjórn Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og hluta Sjálfstæðisflokks sem sat frá árunum 1980 til 1983.
Ragnar var fjármálaráðherra þeirrar ríkisstjórnar.
Á þeim tíma sprengdi verðbólgan öll met. Um tíma fór hún í meira en 100 prósent. Þjóðargjaldþrot vofði yfir. Hagstjórnin fór alveg úr böndunum. Samt var ekki mikill efnahagsvandi í heiminum á þessum tíma; vandinn var heimatilbúinn.
Arfleifð þessarar stjórnar er á einum stað sögð „dökk og óáhugaverð“. En önnur arfleifð var stóra lánið sem Ragnar tók, risastórt erlent lán sem stundum var kallað barnalánið – vegna þess að það kæmi í hlut barnanna og barnabarnanna að borga það.
Ragnar hefur verið fastur maður í stjórn Seðlabankans fyrir og eftir hrun. Þar hefur hann verið þeirrar skoðunar að krónan sé fullgóð fyrir Íslendinga.
— — —
Um barnalánið segir á Wikipedia, þar er lánið í flokknum „Íslensk stjórnmálahneyksli“:
Barnalánið svokallaða var hluti af efnahagsráðstöfunum sem ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens greip til í efnahagsþrengingum snemma á 9. áratugnum. Barnalánið var kúlulán sem ríkisstjórnin tók hjá Hambros-bankanum í London uppá 35 milljónir punda. Lánið sem bar 13% vexti hafði gjalddaga árið 2016 og fékk því nafngiftina „Barnalánið“, því það myndu verða börn þeirra sem tóku lánið sem loksins greiddu það. Andvirði lánsins var nýtt til margvíslegra framkvæmda, m.a. til þess að afstýra atvinnuleysi. Fjármálaráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen var Ragnar Arnalds.