
Vegur þeirra sem mætti kalla sósíalista innan Vinstri grænna hefur vaxið mjög eftir kosningarnar.
Eftir brotthvarf Kolbrúnar Halldórsdóttur er græna hlið flokksins mjög veikluð, helst má búast við að sá hluti sé í höndum Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur.
Annars eiga þingmenn flokksins rætur sínar í vinstrinu, og í gamla Alþýðubandalaginu, sumir reyndar að langfeðgatali eins og hinn nýi þingmaður Ásmundur Einar Daðason frá Lambeyrum.
Ég var í sveit í Laxárdalnum þegar ég var drengur, flestir kusu Framsókn, sumir Sjálfstæðisflokkinn, en aðeins einn yfirlýstur sósíalisti var í dalnum, Einar á Lambeyrum, afi Ásmundar, mikill sómamaður.
Kolbrún býðst reyndar til að vera umhverfisráðherra áfram, en ég er ekki viss um að sé mikill hljómgrunnur fyrir því.
Mætti jafnvel leggja ráðuneytið niður í sparnaðarskyni?