
Það fer mjög í taugarnar á stjórnmálamönnum þegar þeir geta ekki stjórnað fjölmiðlaumræðunni.
Steingrímur J. vill ekki að fjallað sé um að ESB gæti verið eins og fleinn í stjórnarmyndunarviðræðunum.
Svipuð voru viðbrögð Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben á kosninganótt þegar þeir kvörtuðu sáran undan því að of mikið hefði verið fjallað um spillingu og styrkjamál fyrir kosningarnar.
Voru greininlega mjög móðgaðir báðir.
Þá tók Steingrímur upp hanskann fyrir fjölmiðlana.
Þetta var nefnilega umræða sem honum var þóknanleg. Hjálpaði flokki hans.
En ESB umræðan er það ekki. Hún er erfið og leiðinleg fyrir hann.