
Stympingarnar milli VG og Samfylkingarinnar vegna Evrópumála eru mjög vondur fyrirboði um samstarf þessara flokka.
Maður horfir aftur á árið 1978 þegar vinstri flokkarnir, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur, fóru í stjórn saman. Það er ófriðlegasta stjórnarsamstarf í sögu lýðveldisins og sprakk eftir eitt ár.
Framsókn var með í þeirri stjórn – maður spyr hvort væri til bóta að Framsóknarflokkurinn verði með í ríkisstjórn? Framsókn gæti kannski verið einhvers konar stuðpúði milli vinstri flokkanna. Ólíkt VG og Samfylkingu hefur Framsókn líka gengið í gegnum talsverða endurnýjun.
Annars hljóta menn að horfa til einhvers konar þjóðstjórnar. Miðað við vandamálin sem blasa við er það kannski tilraun sem vert er að reyna.