fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Kosningaúrslitin og Evrópa

Egill Helgason
Sunnudaginn 26. apríl 2009 09:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfylkingin hefur pálmann í höndunum eftir kosningarnar, enda þótt kosningasigur hennar hafi minnkað nokkuð eftir að leið á talninguna. En hún hefur ennþá möguleikann að leita eftir stjórnarsamstarfi við Framsóknarflokkinn og Borgarahreyfinguna ef Vinstri græn reynast erfið í samningum.

Það yrði þó heldur veikur þingmeirihluti, 33-30. Meirihluti Samfylkingar og VG er 34-29.

Svo má segja að Samfylkingin og Vinstri græn séu trúlofuð – og hafi farið í festum inn í kosningarnar. Heitrof á þessum tíma myndi varla mælast vel fyrir. Samstarf Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. virðist líka hafa verið með ágætum.

En Samfylkingin hefur haft uppi stór orð um Evrópusambandið – og nú er túlkun hennar að kosningarnar hafi snúist um ESB. Árni Páll Árnason sagði í gær í sjónvarpinu að hægt væri að fara í aðildarviðræður strax í maí.

Þetta eru yfirlýsingar sem er nánast óhugsandi að komast undan á þessum tímapunkti.

Vinstri græn hljóta að þurfa að gefa eitthvað eftir ef á að verða framhald á þessari ríkisstjórn, jafnvel fallast á aðildarviðræður. Samfylkingin getur varla sætt sig við hina löngu leið tvennra þjóðarkosninga.

Það hefur líka áhrif á stöðuna að nú er þingmeirihluti fyrir aðildarviðræðum við ESB – eða ekki sér maður betur.

Framsóknarflokkurinn hefur reyndar verið hálfvolgur í málinu síðan Sigmundur Davíð tók við, en það breytir því ekki að samþykkt flokksþings frá því í janúar kveður á um aðildarviðræður. Innan Sjálfstæðisflokks eru þingmenn sem eru hlynntir aðild, þar er fremst í flokki Ragnheiður Ríkharðsdóttir.

Eftir ósigurinn mun líklega myndast mikil pressa á Sjálfstæðisflokkinn að breyta um kúrs í Evrópumálum – eða að minnsta kosti að skýra stefnuna. Annars á hann á hættu að missa endanlega stuðning víða í atvinnulífinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“