
Ég verð í kosningasjónvarpinu á RÚV í kvöld og eitthvað fram eftir nóttu.
Svo er Silfur með kosningaívafi í hádeginu á morgun.
Í seinni hluta þáttarins á ég svo von á Ólafi Arnarsyni, höfundi nýrrar bókar um hrunið sem nefnist Sofandi að feigðarósi, og Jóni Gunnari Jónssyni bankamanni en hann hefur sett fram athyglisverðar hugmyndir um endurreisn bankanna.