
Kolbrún Halldórsdóttir er á móti olíuvinnslu á Drekasvæðinu.
Ég geri ráð fyrir að Vinstri græn verði upptekin við að eyða skaðanum af þessari yfirlýsingu næstu dagana.
En það má kannski segja Kolbrúnu til málsbóta að það er eiginlega í verkahring umhverfisráðherra að vera krítískur á svona framkvæmdir.
Ég velti hins vegar fyrir mér viðhorfi þessa hóps til olíunnar á Drekanum.
Líklega telja þeir að ekki megi bíða með að koma henni í hendurnar á sérvöldum hópi einkaaðila.